Sigurskúfur (Chamerion angustifolium)

Útbreiðsla

Flestir fundarstaðir sigurskúfs eru á láglendi eða í neðanverðum fjallshlíðum, en einnig hefur hann fundist á miðhálendinu uppi í 640 m hæð.


Almennt

Nytjar

Sigurskúfur er notaður við bólgu í meltingarvegi en útvortis er jurtin græðandi og mýkjandi. Að auki má nota blöð hans sem salat og unga stöngla sem spergil (Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir 1998).

Líffræði

Sigurskúfur inniheldur m.a. slímefni, barksýrur og ýmis sölt (Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir 1998).

Búsvæði

Vex oft sem slæðingur í grennd við bæi. Finnst einnig villtur í klettum, í bröttum sólríkum brekkum, eða í skóglendi. Þar blómstrar hann gjarna seint. Þegar hann vex í þurrum, ófrjóum brekkum er hann venjulega dvergvaxinn og blómstrar þar ekki.

Lýsing

Stórvaxin planta (30–70 sm) með blöðóttum stilkum og mörgum, bleikum blómum. Blómgast í júlí–ágúst.

Blað

Vex oft í þéttum breiðum og skríður með jarðsprotum. Stöngullinn er þéttblöðóttur. Blöðin gagnstæð, lensulaga, heilrend eða ógreinilega tennt, hárlaus, 4–12 sm á lengd og 1–2 sm á breidd.

Blóm

Blómin eru mörg í löngum klasa, fjórdeild, um 2 sm í þvermál. Krónublöðin rauð, öfugegglaga. Bikarblöðin dökkrauð, lensulaga, loðin. Fræflar eru 8. Frævan undir blómhlífinni, löng og dúnhærð.

Afbrigði

Í þurrum mögrum brekkum móti suðri er hann stundum dvergvaxinn, myndar 10–20 sm langa blaðsprota og blómstrar þá ekki enda í eðli sínu áburðarfrek jurt.

Greining

Auðþekktur frá öðrum íslenskum tegundum á hinum löngu, stórblóma klösum með fjórdeildum blómum.

Útbreiðslukort

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir. 1998. Íslenskar lækningjurtir: söfnun þeirra, notkun og áhrif (2. útg.). Íslensk náttúra IV. Mál og menning, Reykjavík.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Eyrarrósarætt (Onagraceae)
Tegund (Species)
Sigurskúfur (Chamerion angustifolium)