Útbreiðsla
Hann er algengur um allt land, þó fátíður á hálendinu og varla ofan 600 m hæðar (Hörður Kristinsson - floraislands.is). Fræin berast með fuglum og vatni (Lid og Lid 2005).Vistgerðir
Tjarnir og vatnavik, votlendi sem vatn flýtur yfir, stundum í djúpum lækjum sem grafast í mólög.Lýsing
Nokkuð stórgerð vatnajurt (20–60 sm) með kransstæðum blöðum og örsmáum blómum. Blómgast í júlí.
BlaðStönglarnir 2–3 mm gildir, standa að mestu upp úr vatninu og eru alsettir kransstæðum blöðum. Í hverjum kransi eru gjarnan átta til tólf blöð, striklaga eða lensulaga, 1–1,5 sm að lengd á þeim hlutum stöngla sem standa upp úr en töluvert lengri (2–3 sm) og læpulegri niðri í vatninu (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin örsmá, standa einstök í blaðöxlunum, tvíkynja, yfirsætin. Blómhlífin einföld, myndar aðeins fjóra smásepa sem standa út úr frævunni ofanverðri. Ein fræva og einn fræfill í hverju blómi (Hörður Kristinsson 1998).
AldinHnetur (Lid og Lid 2005).
GreiningLíkist flæðalófóti sem er heldur lágvaxnari og hefur breiðari blöð sem standa fjögur til sex saman í kransi. Hann vex aðeins á sjávarflæðum eða í síkjum út frá þeim.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Tjarnir og vatnavik, votlendi sem vatn flýtur yfir, stundum í djúpum lækjum sem grafast í mólög.Biota
- Tegund (Species)
- Lófótur (Hippuris vulgaris)