Útbreiðsla
Aðalheimkynni þess eru syðst á landinu. Það vex einkum í bröttum grasbrekkum undir Eyjafjöllum og í Mýrdal. Á norðanverðu landinu vex það eingöngu við jarðhita og laugar (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Grasi grónar brekkur og blómlendi (Hörður Kristinsson 1998).Lýsing
Meðalhá planta (15–35 sm) með lensulaga blöð og blómin í hnöttóttu axi. Blómgast í júlí.
BlaðStöngullinn hærður, blaðlaus. Blöðin stofnstæð, stilklöng, blaðkan lensulaga, ydd, bogstrengjótt, 5–12 sm á lengd og 1–2 sm á breidd (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin smá, þétt saman í stuttu, kringlóttu axi. Krónan móleit, himnukennd, 4 mm löng, klofin í fjóra flipa til miðs. Fliparnir yddir. Bikarblöðin um 2–3 mm á lengd, dökkkbrún efst, himnukennd neðan til með grænni miðtaug. Fræflar fjórir með stórar, 2–3 mm langar frjóhirslur. Frævan með einum, alllöngum stíl (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist engri annarri íslenskri tegund.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Grasi grónar brekkur og blómlendi (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Selgresi (Plantago lanceolata)