Útbreiðsla
Víða um land (Hörður Kristinsson 1998).Almennt
Trefjasóley er einnig kölluð sefbrúða en nafnið norðsóley kom Jónas Hallgrímsson með (Ágúst H. Bjarnason 1994).
Vistgerðir
Leirefja við tjarnir, læki eða uppsprettur. Vex einnig stundum í grunnum tjörnum og fljóta blöðin þá gjarnan ofan á vatnsyfirborðinu. Hún virðist vera einkennisjurt fyrir járnríkt uppsprettuvatn í mýrlendi, einkum inni á hálendinu og vex þá gjarnan í samfélagi við vatnsnarfagras (Hörður Kristinsson 1998).Lýsing
Jarðlæg jurt með þríflipóttum, hárlausum blöðum og gulum, þrídeildum blómum. Blómgast í júní.
BlaðStöngullinn skriðull, hefur oftast þríflipótt, hárlaus blöð, endafliparnir stundum skertir í endann og getur blaðið þá orðið fimmflipótt (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin eru 6–8 mm í þvermál. Krónublöðin oftast þrjú, öfugegglaga. Bikarblöðin svipuð að lengd eða lítið eitt styttri, ljósmóleit. Fræflar oft 10–15 talsins, frævur álíka margar (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningBlöðin líkjast blöðum lækjasteinbrjóts. Líkist flagasóley en blaðagerðin er allt önnur.
Útbreiðslukort
Myndir
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Leirefja við tjarnir, læki eða uppsprettur. Vex einnig stundum í grunnum tjörnum og fljóta blöðin þá gjarnan ofan á vatnsyfirborðinu. Hún virðist vera einkennisjurt fyrir járnríkt uppsprettuvatn í mýrlendi, einkum inni á hálendinu og vex þá gjarnan í samfélagi við vatnsnarfagras (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Trefjasóley (Ranunculus hyperboreus)