Hvítmaðra (Galium normanii)

Útbreiðsla

Er algeng á láglendi um allt land, og nær víða upp í 900 m hæð í fjöllum. Hæst er hún skráð í 1000 m í Staðarbyggðarfjalli, Bónda og Finnastaðaöxl í Eyjafjarðarsveit.

Búsvæði

Vex í þurru mólendi og á þurrum grasbölum og bökkum.

Lýsing

Fremur lágvaxin planta með mörgum, smáum, hvítum blómum.

Blað

Stöngullinn er ferstrendur með upphleyptum köntum. Blöðin eru 6-8 saman í kransi í hverri hæð á stönglinum, lensulaga og breiðust framan til, broddydd, snörp á röndunum, 5-10 mm á lengd (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Hvítmaðran hefur marggreindar blómskipanir í blaðöxlum efri blaða. Blómin eru hvít eða gulhvít. Krónan er samblaða, 3-4 mm í þvermál, með fjórum, útréttum, krossstæðum flipum. Bikarinn er hárlaus. Fræflar eru fjórir, ein fræva með klofnum stíl (Hörður Kristinsson 2010). 

Greining

Hún líkist nokkuð laugamöðru, en er mun smávaxnari, ekki snörp að ráði, og með fleiri blöð í kransi, oftast 7-8. 

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Möðruætt (Rubiaceae)
Tegund (Species)
Hvítmaðra (Galium normanii)