Laugamaðra (Galium uliginosum)

Útbreiðsla

Fremur sjaldgæf. Vex aðeins á láglendi, hæst fundin í 250 m við Tinnársel í Austurdal, Skagafirði.

Búsvæði

Graslendi á bökkum, grösugir deiglendir móar og grónir hvammar. Vex einkum í graslendi með nokkuð hávöxnu grasi.

Lýsing

Meðalhá planta (12–30 sm) með laufblöðin í krönsum og lítil, hvít, fjórdeild blóm úr blaðöxlunum. Blómgast í júlí.

Blað

Blöðin venjulega fjögur til sex í hverjum kransi, lensulaga eða breiðlensulaga, 6–14 mm á lengd, frambreið, broddydd, snarprend. Stöngullinn skarpstrendur með niðurvísandi broddum sem gera hann mjög snarpan og með þeim styður plantan sig við hávaxinn gróðurinn í kring (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Blómin standa nokkur saman í blómskipunum úr blaðöxlum efri blaðanna. Krónan samblaða, fjórdeild, klofin langt niður, 3–4 mm í þvermál, fliparnir útréttir, krossstæðir. Bikarinn óhærður. Fræflar fjórir, ein fræva með klofnum stíl (Hörður Kristinsson 2010).

Greining

Líkist helst hvítmöðru en laugamaðran þekkist einkum á hinum snarpa stöngli en einnig á því að blöðin eru ekki fleiri en sex í kransi (oft sjö eða átta á hvítmöðru), jurtin er auk þess stórvaxnari og brotgjarnari, vex gjarnan innan um hátt gras.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Möðruætt (Rubiaceae)
Tegund (Species)
Laugamaðra (Galium uliginosum)