Útbreiðsla
Fremur sjaldgæfur burkni. Hann er algengastur á Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Reykjanesskaga en er sjaldgæfur á Norðurlandi (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Hann vex ýmist í hraunsprungum, stórgrýtisurð, gjám, kjarri, grónum bollum eða hlíðum (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Lýsing
Fremur stórvaxinn burkni (30–80 sm) með þrí- til fjórhálffjaðraðar blöðkur.
BlaðLáréttur jarðstöngull með stórum, uppréttum, þrí- til fjórhálffjöðruðum blöðkum. Hliðarsmáblöðin skakktígullaga eða nær þríhyrnd, mjókka út í oddinn en eru breiðust neðst (4–6 sm). Smáblöð annarrar gráðu, sem vísa niður, áberandi stærri en þau sem vísa upp. Smáblöð þriðju gráðu djúpsepótt eða flipótt. Blaðstilkurinn þriðjungur eða meira af lengd blaðsins, oft þétt brúnflosugur neðan til (Hörður Kristinsson 1998).
BlómGróblettir nær kringlóttir eða grunnt nýrlaga. Gróhulan nokkuð varanleg (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist helst stóraburkna og fjöllaufungi. Dílaburkni þekkist auðveldlega frá þeim báðum á því að blaðkan er meira skipt (minnst þrífjöðruð) og með hlutfallslega lengri stilk; einnig á því hvað bleðlar hliðarsmáblaðanna eru misstórir á hvorri hlið.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Hann vex ýmist í hraunsprungum, stórgrýtisurð, gjám, kjarri, grónum bollum eða hlíðum (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Dílaburkni (Dryopteris expansa)