Stóriburkni (Dryopteris filix-mas)

Útbreiðsla

Fremur sjaldgæfur burkni. Hann er algengastur á Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Reykjanesskaga en sjaldgæfur á Norðurlandi.

Búsvæði

Hraunsprungur, urð, grónar brekkur eða skóglendi.

Lýsing

Stórvaxinn burkni (30–80 sm) með þrí- til fjórhálffjöðruðum blöðkum.

Blað

Stuttur og sterklegur, brúnhreistraður jarðstöngull með stórum, uppréttum tvíhálffjöðruðum blöðkum sem geta orðið meira en metri á lengd. Blaðstilkurinn er fjórðungur af heildarlengd blaðsins eða ríflega það. Blaðstilkurinn og miðstrengur blöðkunnar eru flosugir með ljósbrúnum himnukenndum hreistrum. Hliðarsmáblöðin eru 5-15 sm á lengd og 1-3 sm á breidd,  jafnbreið langt út en mjókka í endann. Smáblöð annarrar gráðu eru oftast 1-1,5 sm á lengd á stórum blöðkum, óskipt en tennt, jafnbreið fram og ávöl fyrir endann, með um 8-12 gróblettum í tveim röðum á neðra borði. 

Blóm

5-10 allstóror, kringlóttir gróblettir í tveim röðum á neðra borði smáblöðum annarrar gráðu. Gróhulan vel þroskuð, varanleg, nýrlaga í kring um festipunktinn, nær kringlótt að umfangi og þekur vel miðju blettsins.

Greining

Stóriburkni er fremur auðþekktur frá öðrum íslenskum burknum, er þó einna líkastur fjöllaufungi og þúsundblaðarós. Best er að þekkja stóraburkna frá þeim á fjöðrunum á hliðarsmáblöðunum. Þær eru mjög reglulegar í laginu, jafnbreiðar fram með samsíða hliðum, ávalar fyrir endann, og reglulega grunntenntar. Samsvarandi fjaðrir hinna burknanna eru djúpskertari, breiðastar næst miðstrengnum og mjókka fram. Annað gott einkenni er á gróbærum blöðkum, þar sem eru hinir stóru kringlóttu gróblettir á stóraburkna, með áberandi sterka gróhulu sem venjulega hylur að mestu allan gróblettinn. Fjöllaufungur hefur aflanga eða nýrnalaga gróbletti með fremur ógreinilegri, hliðstæðri hulu, en þúsundblaðarós kringlótta litla gróbletti án gróhulu. Stóriburkni er einnig líkur dílaburkna, en dílaburkni þekkist auðveldlega á því að blaðkan er meira skipt (minnst þrífjöðruð) og með hlutfallslega lengri stilk, einnig á því hvað bleðlar hliðarsmáblaðanna eru misstórir á hvorri hlið.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Burknar (Polypodiopsida)
Ætt (Family)
Skjaldburknaætt (Dryopteridaceae)
Tegund (Species)
Stóriburkni (Dryopteris filix-mas)