![Mynd af Bjöllulilja (Pyrola grandiflora) Mynd af Bjöllulilja (Pyrola grandiflora)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/106d64cd003be0852e4ca449b4d36521.jpg?itok=RZ8QC07d)
Útbreiðsla
Fremur sjaldgæf tegund sem vex einkum á norðaustanverðu landinu, frá Eyjafirði og austur um (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Hallandi mýrlendi, hálfdeigir lyngmóar og skóglendi innan um lyng og hrís (Hörður Kristinsson 1998).Lýsing
Lágvaxin jurt (10–20 sm) með fagurgræn nær kringlótt blöð og nokkur drúpandi, hvít blóm í klasa. Blómgast í júlí–ágúst.
BlaðStöngullinn með nokkrum bleikleitum eða móleitum hreisturblöðum (7–10 mm). Laufblöðin stofnstæð, stilkurinn álíka langur eða lengri en blaðkan sem er nær kringlótt eða sporbaugótt, 2–3,5 sm á kant, fremur þykk og skinnkennd, brún hreisturblöð á milli laufblaðanna (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin eru í fremur gisnum klasa. Krónan klofin nær niður í gegn, um 14–18 mm í þvermál. Krónublaðfliparnir öfugegglaga, hvítir eða með ofurlítið bleikum æðum. Fræflar tíu með fagurgulum frjóhirslum. Ein purpurarauð fræva með löngum (7 mm), bognum stíl. Bikarblöðin um 3 mm á lengd, móleit eða bleik (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningHún er skyld klukkublómi en hefur stærri blóm og gisnari blómskipan og laufblöðin eru skinnkenndari og meira gljáandi á efra borði. Bjöllulilja þekkist einnig vel á hinum langa, bogna stíl.
Útbreiðslukort
![Útbreiðsla - Bjöllulilja (Pyrola grandiflora) Útbreiðsla - Bjöllulilja (Pyrola grandiflora)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/60bd1049efebbe0391f4464a3061b26c.jpg?itok=8USGKfne)
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Hallandi mýrlendi, hálfdeigir lyngmóar og skóglendi innan um lyng og hrís (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Bjöllulilja (Pyrola grandiflora)