Aldurshlutföll rjúpu á veiðitíma 2007
Niðurstöður aldursgreininganna eru birtar hér á vef NÍ en þær verða meðal annars notaðar við mat á stofnstærð rjúpunnar í landinu.
Fyrstu niðurstöður frá veiðitíma 2007:
Landshluti |
Fullo |
Ungar |
Samtals |
% ungar |
Suðvesturland |
2 |
1 |
3 |
33% |
Vesturland |
31 |
76 |
107 |
71% |
Vestfirðir |
14 |
34 |
48 |
71% |
Norðvesturland |
33 |
75 |
108 |
69% |
Norðausturland |
72 |
225 |
297 |
76% |
Austurland |
7 |
18 |
25 |
72% |
Suðurland |
21 |
58 |
79 |
73% |
Samtals |
180 |
487 |
667 |
73% |
Ath: skipting landsins er sú sama og hjá veiðistjórnunarsviði UST (sjá http://www.ust.is/Veidistjornun/Almennt/Veidisvaedi/ ) nema hvað Suðvesturland er hér tekið sér en með Vesturlandi hjá UST.
Samtals er búið að aldursgreina 667 fugla. Hlutfall ungfugla af heildinni er 73% or er þetta lágt hlutfall unga, líkt og hefur einkennt fækkunarár áður. Hlutföll eru einnig mjög jöfn á milli landshluta ólíkt því sem var í fyrra. Árlega er stefnt að því að aldursgreina 4−500 fugla úr hverjum landshluta. Mikið vantar því uppá fullt sýni en nú dregur að þeim tíma að veiðimenn gera að afla sínum og því mikilvægt að nota tækifærið og minna á verkefnið.
Sendið vængina til NÍ
Sérfræðingar Náttúrufræðistofnunar hafa um áratuga skeið rannsakað aldurshlutföll í rjúpnaafla. Á lit flugfjaðra rjúpunnar er hægt að greina á milli tveggja aldurshópa, fugla á fyrsta ári og eldri fugla. Þessi gögn eru m.a. notuð til að reikna út heildarstofnstærð rjúpunnar í landinu. Veiðimenn, sem tilbúnir eru að taka þátt í þessari könnun, eru beðnir um að klippa annan vænginn af öllum þeim rjúpum sem þeir fella. Fuglum af sama veiðisvæði eða úr sömu sveit ber að halda sér í poka þannig að hægt sé að sundurgreina sýnin eftir landshlutum.
Vængina á að senda til
Náttúrufræðistofnun Íslands
Pósthólf 5320
125 Reykjavík
Stofnunin mun greiða sendingarkostnað sé þess óskað. Menn eru beðnir um að láta nafn sitt og heimilisfang fylgja með sýnum þannig að hægt sé að senda þeim, sem það vilja, niðurstöður greininga úr þeirra sýni og heildarniðurstöðurnar í lokin.

Litur flugfjaðra segir til um aldur
Til að aldursgreina rjúpur bera menn saman lit á flugfjöður nr. 2 og flugfjöður nr. 3 (talið utan frá). Fjaðurstafurinn sjálfur er alltaf dökkur hjá íslenskum rjúpum óháð aldri, en við erum að bera saman litinn á föninni sjálfri, ekki fjaðurstafnum. Hjá fuglum á 1. ári er flugfjöður nr. 2 dekkri en nr. 3 eins og hér sést. Ef smellt er á myndina hér til hægri, sést samanburðurinn. Hjá fullorðnum fuglum, fuglum á 2. ári og eldri, eru fjaðrir nr. 2 og 3 jafndökkar eða nr. 3 dekkri. Hjá sumum fullorðnum fuglum eru engin litarefni í fönum flugfjaðra nr. 2 og 3.