Framsetning er í anda sýninga frá fyrri hluta síðustu aldar; uppstoppuðum dýrum er stillt upp án frekari skýringa eða samhengis. En nálægðin við hin framandi og merkilegu dýr heillar jafnt unga sem aldna. Sýningin hefur reynst sérlega skemmtileg fyrir leikskólanemendur og nemendur yngsta stigs grunnskóla sem hafa flykkst á sýninguna í skipulögðum heimsóknum. Á þessum fáu mánuðum sem sýningin hefur staðið hafa yfir 3.000 nemendur heimsótt hana í fylgd kennara sinna og glímt við nokkrar léttar rannsóknarspurningar um dýrin og teiknað uppáhaldsdýrið sitt.
Grunnskólanemendur skoða geirfuglinn á sýningunni Að spyrja Náttúruna - saga Náttúrugripasafnsins. Ljósm. Þórdís Ágústsdóttir.
Nemendur teikna uppáhaldsdýrið sitt, þ.á m. tígrisdýrið. Ljósm. Þórdís Ágústsdóttir.
Einn eftirminnilegasti gripurinn sem til sýnis var í Náttúrugripasafninu á tímum þess í Safnahúsinu er tígrisdýrið og er það einmitt á sýningunni nú. Náttúrufræðistofnun efndi til samkeppni um bestu teikninguna af tígrisdýri og úrval teikninga sem bárust í samkeppnina verður sýnt síðustu sýningarhelgina, 16. – 17. janúar, í tengslum við afhendingu verðlauna og viðurkenningarskjala sem fram fer á laugardaginn kl. 14.