Hrafnaþing: Fuglamerkingar í 45 ár

Á Hrafnaþingi miðvikudaginn 14. febrúar kl. 15:15–16:00, mun Sverrir Thorstensen fuglamerkingarmaður flytja erindið „Fuglamerkingar í 45 ár“. 

Í fyrirlestrinum ræðir Sverrir um fuglamerkingar sem hann hefur stundað í 45 ár en á ferlinum hefur hann merkt tæplega 110.000 fugla af 74 tegundum. Fjallað verður sérstaklega um merkingar og endurheimtur á nokkrum tegundum, meðal annars snjótittlingi, skógarþresti og auðnutittlingi. Einnig verður farið yfir ýmsar merkingar á fuglum í Flatey á Breiðafirði, til dæmis á hrossagauk og óðinshana. Þá hefur Sverrir merkt álftir í 40 ár og fá þær sína umfjöllun.

Útdráttur úr erindinu

Erindið verður flutt í fundaraðstöðu starfsstöðvar Náttúrufræðistofnunar Íslands að Borgum við Norðurslóð, Akureyri. Það verður einnig flutt í beinni útsendingu á Teams.