Bókarkaflar um jöklunarsögu Íslands

Í bókinni European Glacial Landscapes, sem gefin var út á árunum 2021–2023, er fjallað um jöklajarðfræði Evrópu allt frá upphafi síðasta jökulskeiðs fyrir um 120 þúsund árum og fram til núverandi hlýskeiðs. Bókin er yfirlitsbók í þremur bindum og skrifuðu sérfræðingar frá Náttúrufræðistofnun Íslands og Háskóla Íslands kafla þar sem sérstaklega er fjallað um Ísland. Bókin er skrifuð á ensku og ætluð skóla- og fræðasamfélagi jafnt sem almenningi. Umfjöllun hennar er skipt upp eftir tímabilum og landsvæðum auk þess að vera ríkulega skreytt ljósmyndum og kortum. 

Í fyrsta bindi bókarinnar, Maximum Extent of Glaciations (hámark jöklunar), er fjallað um jarðfræðileg ummerki jökla og þá sögu jökla- og umhverfisbreytinga sem þau vitna til um í Evrópu og á aðliggjandi svæðum í austri. Tímabil umfjöllunar er frá upphafi síðasta jökulskeiðs fyrir um 120 þúsund árum fram að hámarki þess fyrir um 20–30 þúsund árum. Í öðru bindi, The Last Deglaciation (síðasta afjöklun), er fjallað um tímabil jökulhörfunar og skammvinnra framrása jökla á síðjökultíma fyrir um 10–20 þúsund árum. Í þriðja bindi, The Holocene (nútími), er sagt frá núverandi hlýskeiði síðustu 11.700 ár, sem einkennst hefur af mildu loftslagi með lágmarksútbreiðslu jökla í Evrópu. 

Í hverju bindi eru sérstakir kaflar þar sem fjallað er um Ísland sem sérfræðingar frá Háskóla Íslands og Náttúrufræðistofnun Íslands skrifuðu. Kaflarnir fjalla um jöklajarðfræði og jöklunarsögu landsins frá síðasta jökulskeiði til dagsins í dag. Um er að ræða heildstæða og ítarlega samantekt sem er byggð á núverandi þekkingu um landmótun og sögu jöklabreytinga á Íslandi. Höfundar kaflanna um Ísland eru Ívar Örn Benediktsson, Skafti Brynjólfsson, Lovísa Ásbjörnsdóttir og Wesley Farnsworth.

Hægt er að fá rafræna útgáfu einstakra kafla sem fjalla um Ísland hjá höfundum. Bókina í heild sinni er bæði hægt að kaupa á rafrænu formi og í prentaðri útgáfu í vefverslun Elsevier, sem er útgefandi bókarinnar.