Náttúrufræðistofnun hlaut bronsdekkið

Náttúrufræðistofnun fékk á dögunum viðurkenningu á ársfundi Orkustofnunar fyrir árangur í orkuskiptum bílaflotans hjá ríkisstofnunum og ríkisfyrirtækjum. Fram kemur í tilkynningu frá Orkustofnun að veittar eru viðurkenningar fyrir árangur í orkuskiptum bílafotans í þrepum, það er fyrir 30, 60, 90 og 100% árangur. 35%  af bílaflota Náttúrufræðistofnunar eru hreinorkubílar.