Góður árangur í arnarvarpi – vöktun leiðir af sér mikilvægar upplýsingar

Afkoma hafarna árið 2024 var með svipuðu móti og árið á undan. Af 68 pörum sem urpu á þessu ári komu 43 pör upp ungum, eða rétt tæplega tvö af hverjum þremur pörum.

Á þessu ári urpu að minnsta kosti 68 arnarpör og 43 þeirra komu upp að minnsta kosti 55 ungum. Þar af var 51 ungi merktur. Þetta er sambærilegur árangur og árið 2023 þegar 43 pör komu upp 56 ungum. Árið 2022 var hins vegar með lakari árum í nýliðun. Arnarstofninn heldur áfram að vaxa hægt en stöðugt og nú eru um 90 arnaróðul í ábúð á vestanverðu landinu, frá Faxaflóa norður í Húnaflóa. 

Á hverju sumri síðan 2019 hafa GPS/GSM-leiðarritar verið settir á arnarunga á öllu  varpsvæðinu. Þessi tæki eru notuð til að skoða búsvæðanotkun og ferðir arna. Á árunum 2019–2023 fengu 53 arnarungar slíka senda og sumarið 2024 bættust 19 ungar í hópinn. Af þessum 72 fuglum eru 49 fuglar enn á lífi með virka senda; 35 fuglar frá fyrri árunum og 14 fuglar frá þessu ári. 

Dánarorsakir þeirra sem hafa drepist eru af ólíkum toga, þar á meðal fuglaflensa, flug á raflínu, blýeitrun (eftir að hafa étið gæsarhræ) og drukknun. 

Leiðarritarnir veita dýrmætar upplýsingar um ferðir og hegðun arna á líftíma þeirra því gera má ráð fyrir að þeir beri sendana ævilangt. Með auknu gagnasetti verður hægt að kortleggja helstu flugleiðir arna, og öðlast dýpri skilning á lífsháttum þeirra og svæðanotkun , en slíka upplýsingar nýtast meðal annars við mat á mikilvægi einstakra svæða fyrir tegundina. Þannig verður hægt að greina betur hvar skal forðast framkvæmdir, eins og uppsetningu vindmylla, sem reynast örnum skeinuhættari en flestum öðrum fuglum.

Vöktun arnarins er unnin í samstarfi við Náttúrustofu Vesturlands, Háskóla Íslands og heimamenn. Kristinn Haukur Skarphéðinsson, sem nú er látinn, hafði umsjón með vöktun arnarstofnsins um árabil. Hann hóf arnarmerkingar árið 1985 og frá þeim tíma til dagsins í dag hafa verið merktir 1004 fuglar. Hann helgaði sig rannsóknum á erninum og var brautryðjandi á því sviði. Rannsóknir hans á lífsvenjum og búsvæðum arnarins skipuðu honum sess í fremstu röð fræðimanna á alþjóðavettvangi. Árið 2023 var síðasta  árið sem Kristinn Haukur heimsótti óðul og merkti arnarunga. Þó hann væri ekki á vettvangi síðasta sumar stýrði hann verkefninu frá heimili sínu og tók virkan þátt, oft í beinni útsendingu. Eftir hverja heimsókn að hreiðrum var honum gerð grein fyrir stöðu mála. Kristins Hauks, framlags hans og nærveru verður sátt saknað.