Skógarkerfill og fleiri áþekkar tegundir
L14.6 Skógarkerfill og fleiri áþekkar tegundir
Eunis-flokkun: E5.12 Weed communities of recently abandoned urban and suburban constructions.
![Skógarkerfill í gömlum túnum og graslendisbökkum á Mógilsá á Kjalarnesi Skógarkerfill í gömlum túnum og graslendisbökkum á Mógilsá á Kjalarnesi.](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/shm_skogarkerfill_mogilsa.jpg?itok=Pqnp-ZPi)
![Breiða af skógarkerfli í Hrísey á Eyjafirði Breiða af skógarkerfli í Hrísey á Eyjafirði](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/bm_skogarkerfill_hrisey.jpg?itok=bSEhI9dM)
Lýsing
Mjög gróskumikið blómlendi einkum myndað af skógarkerfli, í minna mæli spánarkerfli eða öðrum ágengum, köfnunarefnissæknum tegundum. Finnst í vaxandi mæli á friðuðu landi við þéttbýli, í vegköntum, gömlum túnum og lúpínubreiðum þar sem jarðvegur er frjósamur og fremur rakur. Land er mjög vel gróið, gróður mjög hávaxinn, þéttur og fábreyttur.
Útbreiðsla
Finnst í vaxandi mæli í öllum landshlutum, útbreiðsla ekki nákvæmlega kortlögð enn.