Útbreiðsla
Algeng sums staðar á landinu en sjaldgæf annars staðar. Hún virðist vera rótgróin og gömul í landinu sunnanverðu, Vesturlandi og norður um en austan Eyjafjarðar á Norðurlandi virðist hún aðeins koma fyrir sem slæðingur meðfram vegum og á athafnasvæði landgræðslunnar. Hún hefur því ekki náð því enn að dreifast um allt landið en er í sókn og berst auðveldlega um (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Almennt
Nafnið hundasúra er að líkindum komið til af því að blöð þessarar tegundar þóttu ekki eins álitleg og blöð túnsúrunnar og því hafi plantan verið kennd við hunda í niðrandi merkingu (Ágúst H. Bjarnason 1994).
LíffræðiHundasúran hefur svo gott sem sömu áhrif og túnsúran hvað viðkemur grasalækningum (Ágúst H. Bjarnason 1994).
SkaðsemiSúrufrjó (Rumex spp.) valda meðalsterkum (e. moderate) ofnæmisviðbrögðum.Frjótími:Súrufrjó eru í loftinu frá því snemma í júní og fram í ágúst.Víxlbinding:Almennt er víxlbinding við ofnæmisvaka súrufrjóa ekki þekkt.
Vistgerðir
Melar, skriður, sandar og þurrt óræktarland, einnig sem slæðingur í túnum. Myndar oft stórar breiður þar sem áburði er dreift á örfoka sand (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Lýsing
Fremur lágvaxin planta (10–30 sm) með spjót- eða lensulaga blöð og rauða blómklasa á stilkendum. Blómgast í júní.
BlaðLaufblöðin stilkuð, spjót- eða lensulaga. Blaðkan 2–6 sm löng, 2–20 mm breið, með útstæðum eyrum neðst (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin mörg í klasaleitum blómskipunum, einkynja í sérbýli. Blómhlífin sexblaða. Blómhlífarblöðin oftast rauð, sjaldnar græn, 1,5–2 mm löng, þrjú þau ytri mjórri en þau innri. Fræflar sex með rauðum frjóhnöppum. Þrjú ytri blómhlífarblöð kvenblómanna beygjast niður við aldinþroskunina en þau innri eru stærri og lykja um aldinið (Hörður Kristinsson 1998).
AldinÞrístrent (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist helst túnsúru en hundasúra er með útstæð horn neðst á blöðkunni á meðan horn túnsúrunnar vísa niður.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Melar, skriður, sandar og þurrt óræktarland, einnig sem slæðingur í túnum. Myndar oft stórar breiður þar sem áburði er dreift á örfoka sand (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Hundasúra (Rumex acetosella)