27. janúar 2021. Kristján Leósson: Áhrif silfurbergs frá Helgustöðum í Reyðarfirði á þróun náttúruvísindanna

Kristján Leósson flytur erindið „Áhrif silfurbergs frá Helgustöðum í Reyðarfirði á þróun náttúruvísindanna“ á Hrafnaþingi miðvikudaginn 27. janúar 2021 kl. 15:15.

Silfurberg frá Íslandi gegndi lykilhlutverki í þróun náttúruvísinda, allt frá 17. öld og fram á fyrri hluta 20. aldar. Stórir og tærir silfurbergskristallar sem fundust við Helgustaði í Reyðarfirði voru ómissandi hjálpartæki í rannsóknum í kristallafræði, efnafræði, eðlisfræði og fleiri sviðum yfir 250 ára tímabil. Silfurbergskristallar frá Íslandi voru einnig nýttir í margs konar mælitækjum fyrir matvælaiðnað og efnaframleiðslu, í læknisfræðilegum tilgangi, í fjarskiptabúnaði og fleira. Saga íslenska silfurbergsins var að mestu óþekkt þar til Leó Kristjánsson jarðeðlisfræðingur hóf rannsóknir á henni árið 1995. Þeirri vinnu hélt hann áfram þar til hann lést árið 2020.

Fyrirlesturinn á Youtube