Jarðsaga

Jörðin myndaðist ásamt öðrum reikistjörnum sólkerfisins fyrir um 4,6 milljörðum ára. Ystu lög jarðar mynda fleka sem reka til og frá. Á úthafshryggjum þar sem flekar reka hver frá öðrum myndast ný úthafsskorpa og við eyjaboga eyðist hún. Í fellingafjöllum krumpast skorpan saman og lyftist. Fjöllin rofna síðan og mulningurinn sest til á láglendi eða í sjó og myndar setlög sem verða að setbergi.

Sögu jarðar má lesa úr jarðlögum sem finnast við yfirborð jarðar. Þannig má segja að jarðlögin séu eins konar handrit sem varðveitir sögu jarðarinnar. Með rannsóknum á fornum jarðlögum má fá upplýsingar um umhverfisaðstæður og lífríki á þeim tíma þegar þau mynduðust.

Tekist hefur að setja saman nokkuð heildstæða mynd af sögu jarðar, sérstaklega síðustu 600 milljón árin eða svo. Tímatal jarðsögunnar skiptist í aldir, tímabil, tíma og skeið. Alþjóðlega jarðlagafræðinefndin (International Commission on Stratigraphy) uppfærir og heldur utan um jarðsögutímatöflu.