Heiðlóa (Pluvialis apricaria)

Útbreiðsla

Heiðlóa verpur á A-Grænlandi, Íslandi og um norðanverða Evrópu austur í miðja Síberíu. Hún er alger farfugl og hefur vetursetu frá Bretlandseyjum suður til Marokkó (Guðmundur A. Guðmunds­son 1997).

Stofnfjöldi

Heiðlóa er mjög algeng og útbreidd hér á landi og hefur varp­stofninn verið metinn um 400 þúsund pör (Kristinn Haukur Skarphéðinsson o.fl. 2016). Eldra mat byggt á hliðstæðum aðferðum en ekki eins miklum gögnum var 310.000 pör (Thorup 2006). 

Dreifing og þéttleiki eftir vistlendum: Heiðlóa er útbreidd um land allt, einkum í móavistum (sjá kort). Reiknuð stofnstærð er 396.000 pör og eru ²/3 hlutar stofnsins á láglendi, neðan 300 m hæðarlínu (Kristinn Haukur Skarphéðinsson o.fl. 2016). Þéttleiki er mestur í móavistum, 13 pör á km² á láglendi en 4,7 pör á km² á hálendi og þar er 42% stofnsins að finna. Þéttleiki í hrauna-, mosa- og mýravistum á láglendi er um 10 pör á km². Um 23% heiðlóustofnsins eru innan mikilvægra fuglasvæða (sjá töflu).

Válistaflokkun

VU (í nokkurri hættu)

ÍslandEvrópuválistiHeimsválisti
VU LC LC

Forsendur flokkunar

Kynslóðalengd (IUCN): 4,66 ár
Tímabil sem mat miðast við (3 kynslóðir): 2010-2024

Heiðlóa hefur verið vöktuð um nokkurt skeið á fimm stöðum á landinu sem hluti af vöktun mófugla. Þessar talningar eru á Suðurlandsundirlendinu, Mýrum í Borgarbyggð, við Markarfljót, í Þingeyjarsýslum og á Úthéraði (Pálsdóttir et al 2024, Yann Kolbeinsson o.fl. 2023, Áslaug Lárusdóttir o.fl. 2023; auk þess sjá Vöktun mófugla). Heiðlóu fer fækkandi á öllum svæðum, og er fækkunin 3-6% árlega á hverju svæði. Til að reikna stofnþróun heiðlóu yfir tímabilið var notast við vegið meðaltal úr þessum talningum þar sem árleg breyting á hverju svæði er margfölduð með hlutfallslegum fjölda fugla sem taldir voru í upphafi á því svæði. Úr því fæst að heiðlóu fækkar að meðaltali um tæplega 4% á ári, sem samsvarar rúmlega 40% fækkun yfir viðmiðunartímabilið og flokkast heiðlóa því sem tegund í nokkurri hættu (VU, A2ab). Orsakir að baki þessari fækkun eru óþekktar en líklega tengjast þær búsvæðabreytingum en heiðlóa reiðir sig á opin búsvæði svo sem mólendi til afkomu en þau eiga víða undir högg að sækja vegna aukinna mannlegra umsvifa.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2000: Heiðlóa var ekki í hættu (LC).

Válisti 2018: Heiðlóa var ekki í hættu (LC).

Verndun

Heiðlóa er friðuð samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.

Mikilvæg svæði

Ekki er vitað um neina viðkomustaði heiðlóu hér á landi sem teljast alþjóðlega mikilvægir, enda sjaldgæft að sjá hér stóra hópa, þ.e. þúsundir fugla.

IBA viðmið – IBA criteria:

A4 i: NV-Evrópa = 9.300; 3.100 pör/pairs (Wetlands International 2016)

B1 i: A4 i

Töflur

Reiknaður fjöldi heiðlóa sem gæti orpið á þeim mikilvægu fuglasvæðum þar sem >1% íslenska stofnsins er að finna – Calculated number of breeding Pluvialis apricaria within important bird areas with >1% of the Icelandic population.*

Svæði
Area
Svæðisnúmer
Area code
Árstími
Season
Fjöldi (pör)
Number (pairs)
Ár
Year
% af íslenskum stofni
% of Icelandic popul.
Alþjóðlegt mikilvægi
International importance
Borgarfjörður–Löngufjörur FG-V_10 B 4.375 2013 1,1  
Laxárdalsheiði VOT-V_3 B 5.088 2013 1,3  
Arnarvatnsheiði VOT-N_1 B 7.916 2013 2,0  
Skagi VOT-N_5 B 4.562 2013 1,2  
Melrakkaslétta  FG-N_4 B 11.552 2013 2,9  
Vatnajökulsþjóðgarður VOT-N_15 B 4.289 2013 1,1  
Suðurlandsundirlendi VOT-S_3 B 37.066 2013 9,4  
Önnur mikilvæg svæði
Other important areas
  B 17.183 2013 4,3  
Alls–Total     92.031   23,2  
*byggt á Náttúrufræðistofnun Íslands, óbirt gögn/unpublished data

Myndir

Heimildir

Áslaug Lárusdóttir, Erlín Emma Jóhannsdóttir, Guðrún Óskarsdóttir, Halldór Walter Stefánsson, Hálfdán Helgi Helgason, Jóhann Finnur Sigurjónsson, Kolbrún Þóra Sverrisdóttir, Kristín Ágústsdóttir og Margrét Gísladóttir (2023). Náttúrustofa Austurlands, ársskýrsla 2023. Sótt 3. Mars 2025 af: https://drive.google.com/file/d/1GTiIzOzIdq3ng4ZeYPCvUJDEE2pP4huw/view

Birdlife International 2015. European red list of birds. Luxembourg: Official publication of the European communities. http://datazone.birdlife.org/userfiles/file/Species/erlob/EuropeanRedListOfBirds_June2015.pdf [skoðað 20.10.2016].

Guðmundur A. Guðmundsson 1997. Lóan er komin – en hvaðan? Bliki 18: 55–58.

Kristinn Haukur Skarphéðinsson, Borgný Katrínardóttir, Guðmundur A. Guðmundsson og Svenja N.V. Auhage 2016. Mikilvæg fuglasvæði á Íslandi. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar Nr. 55. 295 s. rafræn útgáfa leiðrétt í nóvember 2017. http://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_55.pdf

Pálsdóttir, A. E., Þórisson, B., & Gunnarsson, T. G. (2025). Recent population changes of common waders and passerines in Iceland’s largest lowland region. Bird Study, 1–13. https://doi.org/10.1080/00063657.2025.2450394

Thorup, O., ritstj. 2006. Breeding waders in Europe 2000. International Wader Studies 14. Thetford: International Wader Study Group. (Tölur yfir íslenska stofna byggjast á óbirtri samantekt: Guðmundur A. Guðmundsson 2002. – Estimates of breeding populations of Icelandic waders worked out for the „Breeding waders in Europe 2000” report).

Yann Kolbeinsson, Snæþór Aðalsteinsson, Árni Einarsson, Aðalsteinn Örn Snæþórsson, & Þorkell Lindberg Þórarinsson. (2023). Ástand fuglastofna í Þingeyjarsýslum 2021-2023. Sótt 3. Mars 2025 af: https://nna.is/wp-content/uploads/2024/01/2306-Fuglavoktun-2021-2023.pdf

Wetlands International 2016. Waterbird Population Estimates. http://wpe.wetlands.org/search [skoðað 26. nóvember 2016].

Höfundur

Kristinn Haukur Skarphéðinsson maí 2017, október 2018

Aldís Erna Pálsdóttir og Borgný Katrínardóttir mars 2025

Ríki (Kingdom)
Dýr (Animalia)
Fylking (Phylum)
Seildýr (Chordata)
Flokkur (Class)
Fuglar (Aves)
Ættbálkur (Order)
Strandfuglar (Charadriiformes)
Tegund (Species)
Heiðlóa (Pluvialis apricaria)

English Summary

The Pluvialis apricariapopulation in Iceland is estimated 396,000 pairs, based on measured densities in different habitat types and known and probable distribution; 21% may nest in IBAs designated for other species, but such areas are specifically designated for this species.

Icelandic Red list 2025: Vulnerable (VU, A2ab).