Vébjarnarnúpur
Kortasjá
Opna í kortasjá – Open in map viewer
English summary
Vébjarnarnúpur coastal mountain in Vestfirðir peninsula, NW-Iceland, is an internationally important seabird colony (≥10,000 pairs) with Fulmarus glacialis (14,960 pairs).
SF-V 29
Hnit – Coordinates: N66,22688, V22,97251
Sveitarfélag – Municipality: Ísafjarðarbær
IBA-viðmið – Category: A4iii
Stærð – Area: 459 ha (með verndarjaðri – with buffer zone)

Vébjarnarnúpur, 359 m y.s., liggur hömrum girtur við utanvert Ísafjarðardjúp, milli Snæfjallastrandar og Grunnavíkur. Þar er alþjóðlega mikilvæg sjófuglabyggð (≥10.000 pör), einkum fýll (14.960 pör) en einnig tæp 2% íslenska hvítmáfsstofnsins, 40 pör.
Vébjarnarnúpur er á náttúruminjaskrá, ásamt hinum gömlu Snæfjalla- og Grunnavíkurhreppum utan Hornstrandafriðlands.

Helstu varpfuglar í Vébjarnarnúpi – Key bird species breeding in Vébjarnarnúpur
Tegund Species |
Latneskt heiti Scientific name |
Árstími Season |
Fjöldi (pör) Number (pairs) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
---|---|---|---|---|---|---|
Fýll1 | Fulmarus glacialis | Varp–Breeding | 14.960 | 2014 |
1,2 |
|
Hvítmáfur2 | Larus hyperboreus | Varp–Breeding | 40 | 2009 |
1,7 |
|
Alls–Total | 15.000 | A4iii | ||||
¹Arnþór Garðarsson, Kristján Lilliendahl og Guðmundur A. Guðmundsson 2019. Fýlabyggðir á Íslandi 2013–2015. Bliki 33: 1–14. ²Ævar Petersen, Sverrir Thorstensen og Böðvar Þórisson 2014. Útbreiðsla og breytingar á fjölda hvítmáfa á Íslandi. Náttúrufræðingurinn 84: 153–163. |