Haftyrðlar í vanda staddir

Upp á síðkastið hafa borist tilkynningar til Náttúrufræðistofnunar Íslands um haftyrðla í vanda. Er þá um að ræða fugla sem hafa hrakist upp á land í óveðrum og strandað þar en haftyrðlar eru ófærir um að hefja sig til flugs af landi.

Ef ekki sér á fuglunum er fólki ráðlagt að fara með þá niður að sjó og sleppa þeim þar. Haftyrðill er hánorræn tegund og var hér sjaldgæfur varpfugl á norðanverðu landinu fram undir aldamótin síðustu. Ekki hefur orðið vart við varp síðan þá en haftyrðlar eru algengir vetrargestir á hafinu í kringum Ísland.