Náttúrufræðistofnun tilheyrir hópi 22 samstarfsaðila sem, undir stjórn Umhverfisstofnunar, hefur hlotið 3,5 milljarða króna styrk frá Evrópusambandinu fyrir verkefni sem ber yfirskriftina LIFE ICEWATER en markmið þess er að bæta og flýta innleiðingu vatnaáætlunar á Íslandi. Styrkurinn er einn sá stærsti sem Ísland hefur fengið frá evrópskum samkeppnissjóði.
LIFE ICEWATER er ætlað að efla þekkingu á notkun, eiginleikum og ástandi vatns á Íslandi, tryggja fumlausa og samhæfða stjórnsýslu í vatnamálum, bæta vatnsgæði meðal annars með úrbótum í fráveitu og hreinsun á fráveituvatni og fræða almenning sem og hagaðila um mikilvægi vatns. Verkefnið verður unnið á árunum 2025–2030 og er áætlaður heildarkostnaður um 5,8 milljarða króna. LIFE-áætlun Evrópusambandsins styrkir verkefnið um 60% og dreifist styrkurinn á samstarfshópinn.
Skýrt er kveðið á um hlutverk opinberru stofnananna fjögurra (Umhverfisstofnunar, Náttúrufræðistofnunar, Veðurstofu Íslands og Hafrannsóknastofnunar) sem taka þátt í samstarfsverkefninu í reglugerð nr. 935/2011, um stjórn vatnamála. Stofnanirnar hafa verið hluti af innleiðingarteyminu frá upphafi, hafa þróað umgjörð og séð um framkvæmd vatnaáætlunar fram að þessu og hafa því mikla reynslu í framkvæmd og eftirliti með stöðu verkefnisins.
Náttúrufræðistofnun mun taka virkan þátt í viðburðum tengdum verkefninu sem snúa að fræðslu og kynningu vatnamála. Stofnunin mun safna gögnum um ferskvatn, strandsjó og árósavatn, endurskoða flokkunarkerfi og móta leiðbeiningar fyrir eftirlit með gæðaþáttum. Náttúrufræðistofnun mun einnig taka þátt í að þjálfa sérfræðinga framtíðarinnar á fræðslunámskeiðum í sýnatöku og greiningu lífvera og tekur einnig þátt í mótun næstu vatnaáætlunar (vatnaáætlunar 2028–2030).