Hakkaþon Copernicus Ocean 2025

Hakkaþoni Copernicus Ocean 2025 verður haldið í Háskóla Reykjavíkur og á netinu helgina 7.–9. febrúar næstkomandi. 

Hakkaþon er viðburður þar sem hópur af fólki kemur saman til að búa til nýjar hugbúnaðarlausnir eða vinna að lausnum á tilteknum vandamálum eða verkefnum á skömmum tíma, oft 24–48 klukkustundum. Á hakkaþoni Copernicus Ocean gefst nemendum, frumkvöðlum og öðru áhugafólki kostur á að nota gögn og þjónustu Copernicus til að takast á við raunverulegar áskoranir, samþætta hugmyndir og þróa lausnir sem stuðla að betra eftirliti með hafi og strandsvæðum fyrir sjálfbæra framtíð. 

Upplýsingar, dagskrá og skráning.