Kortlagning skógarkerfils og spánarkerfils á grænum svæðum í Reykjavík


Nýverið kom út í vísindatímaritinu „Invasive Plant Science and Management“ grein sem fjallar um útbreiðslu villts skógarkerfils (Anthriscus sylvestris) og spánarkerfils (Myrrhis odorata) á grænum svæðum í Reykjavík.
Þéttbýli eru í auknum mæli álitin mikilvæg svæði fyrir líffræðilega fjölbreytni. Innfluttar tegundir ógna þessari fjölbreytni og þéttbýlisstaðir geta orðið miðstöð fyrir dreifingu þeirra. Verkefnið gekk út á að kortleggja dreifingu skógarkerfils og spánarkerfils á grænum svæðum í Reykjavík í samræmi við það markmið í stefnu borgarinnar um líffræðilega fjölbreytni, að spornað verði gegn ágengum tegundum.
Í maí til október 2017 voru fjögur svæði kortlögð: Laugarnes, Vatnsmýri, Elliðaárdalur og Ægissíða. Í ljós kom töluverð útbreiðsla skógarkerfils en hann náði yfir að minnsta kosti 10% af heildarsvæðinu sem var skoðað (158 ha). Spánarkerfill var staðbundnari og útbreiðsla hans var ≤1 ha. Báðar tegundir voru algengar nálægt byggingum, göngustígum, árbökkum og lækjum. Lagðar eru fram tillögur sem felast í langtímavöktun og heildstæðri stjórnunaráætlun til að stýra útbreiðslu skógarkerfils og annarra framandi plantna.
Snorri Sigurðsson líffræðingur hjá Náttúrufræðistofnun er einn af höfundum greinarinnar.
Nánari upplýsingar er að finna í greininni:
Luoma, M.O., M. Tamayo og S. Sigurðsson 2024. Mapping Wild Chervil (Anthriscus Sylvestris) and Anise (Myrrhis Odorata) in Urban Green Spaces: A Subarctic Case Study. Invasive Plant Science and Management 2024: 1–35. https://doi.org/10.1017/inp.2024.39