Rannsókn á erfðamengi hafarnar

Nýverið kom út í vísindatímaritinu Wellcome Open Research grein sem fjallar um rannsókn á erfðamengi hafarnar. Í rannsókninni var erfðaefni kvenkyns hafarnar heilraðgreint og erfðasamsetning fuglsins kynnt í greininni. Kristinn Haukur Skarphéðinsson dýravistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun var einn af höfundum greinarinnar. Hann lést á liðnu ári.

Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að erfðamengið samanstendur af 1.320,30 megabösum og var þeim flestum raðað á 34 litninga, þar á meðal Z og W kynlitningarnir. Genagreining í gagnagrunninum og hugbúnaðarverkfærinu Ensembl greindi 17.501 prótínmyndandi gen í erfðamenginu.

Rannsóknin var hluti af verkefnunum Darwin Tree of Life og European Refence Genome Atlas (ERGA), sem bæði hafa það að markmiði að raðgreina þúsundir tegunda og nýta þau gríðarmiklu gögn sem skapast, meðal annars til aukinnar verndunar líffræðilegs fjölbreytileika.

Nánari upplýsingar er að finna í greininni

Pálsson, S., K.H. Skarphéðinsson, J. Heintz, P. Quarfordt, A-S. Strand, I. Bunikis, O.V. Pettersson 2024. The genome sequence of the white-tailed eagle, Haliaeetus albicilla (Linnaeus, 1758). Wellcome Open Research 9: 575. https://doi.org/10.12688/wellcomeopenres.23089.1