Auglýst eftir húsráði

Náttúrufræðistofnun óskar eftir að ráða húsráð í 50% stöðu á starfsstöð stofnunarinnar í Garðabæ. Starfið felst í almennri umsjón með húsnæði, bifreiðum og húsbúnaði ásamt þjónustu við starfsfólk þeirra stofnana sem hafa starfsstöð í húsnæðinu. Auk þess er viðkomandi tengiliður vegna aðkeyptrar þjónustu s.s. ræstingar, sorphirðu og fleira.

Helstu verkefni og ábyrgð
•    Dagleg umsjón og eftirlit með húsnæði, lóð, bifreiðum og húsbúnaði
•    Umsjón með ræstingum, sorphirðu, umhirðu á lóð, snjómokstri og hálkuvörnum og er tengiliður við verktaka
•    Er tengiliður við fyrirtæki vegna þjónustusamninga
•    Umsjón með smærri vöruinnkaupum og rekstrarþáttum
•    Ýmis aðstoð við starfsfólk, sendiferðir og móttaka sendinga
•    Er öryggisvörður á starfsstöð stofnunarinnar í Garðabæ
•    Ýmis önnur tilfallandi störf

Nánari upplýsingar um starfið
Umsóknarfrestur er til og með 21. febrúar 2025.