Alþjóðlegur dagur jökla

Í tilefni af alþjóðlegum degi jökla, sem haldinn er árlega þann 21. mars, verður sýningin „Kynslóðir jökla“ opnuð í Loftskeytastöðinni í Reykjavík. 

Dagurinn er tileinkaður vitundarvakningu um mikilvægi jökla fyrir umhverfið, ferskvatnsbirgðir jarðar og áhrif loftslagsbreytinga á þá. Markmiðið með deginum er að hvetja einstaklinga, stjórnvöld og vísindasamfélagið til að grípa til aðgerða til að vernda þessa viðkvæmu náttúruauðlind.

Sýningin „Kynslóðir jökla“ varpar ljósi á þær umbreytingar sem orðið hafa á íslenskum jöklum með aðstoð ljósmynda, gervitunglagagna, mælinga og jöklahljóða. Hún dregur fram hversu hröð hörfun og massatap jökla hefur verið á síðustu 30 árum en þessir áratugir marka tímabil mikillar rýrnunar jökla vegna hamfarahlýnunar af mannavöldum. Á þessu tímabili hefur umbreyting jökla verið að umfangi sambærileg þeirri sem átti sér stað á allri 20. öldinni. Á sýningunni má sjá hvernig ásýnd jökla hefur tekið stórfelldum breytingum og hvernig sú þróun heldur áfram.

Að sýningunni standa: Jöklarannsóknafélag Íslands, Náttúrufræðistofnun, Veðurstofa Íslands, Jarðvísindastofnun Háskólans og Loftskeytastöðin.

Opnunartímar sýningarinnar

Formleg opnun: Föstudaginn 21. mars kl. 15:30–17. Andri Snær Magnason opnar sýninguna.
Opnunartímar safnsins: Fimmtudaga til laugardaga kl. 13–17.
Sýningartímabil: 21. mars til 12. apríl 2025.

Verið hjartanlega velkomin!

 

Climate emergency: 2025 declared international year of glaciers

Alþjóðaár jökla á hverfanda hveli og samkeppni ungs fólks