Vettvangsferð á Hornstrandir

Dagana 13.–23. mars stóð yfir vettvangsferð á vegum Náttúrufræðistofnunar á Hornstrandir, þar sem fylgst var með lífríki svæðisins undir lok vetrar. Ester Rut Unnsteinsdóttir spendýravistfræðingur var leiðangursstjóri ferðarinnar en með í för var kvikmyndateymi frá Humblebee productions, sem vinnur að heimildarþætti um lífshætti refa í Hornvík.

Veðurfar var óvenjulegt fyrir þennan árstíma. Þegar komið var á svæðið þann 13. mars var snjór á um 60% láglendis og hiti í kringum 7°C. Hitinn hélst nokkuð stöðugur næstu daga og þann 18. mars rigndi mikið með þeim afleiðingur að mestallur snjór á láglengi bráðnaði. Um 20. mars kólnaði aftur og snjóaði og við brottför þann 23. mars var allt land þakið nýföllnum snjó. Kvikmyndatökuliðið hélt áfram dvöl sinni í Hornvík þar sem hríðarbyljir hafa gengið yfir undanfarna daga.

Á meðan dvölinni stóð sást til 14–15 refa í austanverðri Hornvík, allt frá fjöru við Hornvíkurós og upp á bjargbrúnir Hornbjargs. Sum dýrin voru í tilhugalífi en önnur ekki og ráfuðu þau um í fjörunum í leit að æti. Þau dýr sem ekki tímgast eru kölluð gelddýr og skiptir hlutfall þeirra máli þegar lagt er mat á fjölgun og fækkun í stofninum. Flestir refirnir sem sáust virtust í góðu ástandi og með þykkan feld þannig að það lítur út fyrir að nægilegt æti hafi verið til staðar í vetur. Allir refirnir nema einn voru af mórauðu litaafbrigði en breytileikinn í lit þeirra er talsverður svo hægt er að þekkja suma einstaklinga frá öðrum. Til dæmis er einn ryðrauður á litinn, tveir steingráir með móbrún eyru og fætur, þrír steggir kaffibrúnir og ein læða móbrún með hvíta tá á framfæti og hvíta neðri vör. Þetta auðveldar það að þekkja dýrin í sundur og fylgjast með ferðum þeirra og atferli.

Pörun refa fer fram í mars og er mikill munur á atferli dýra sem eru í tilhugalífi og þeirra sem eru geld. Læður eru aðeins móttækilegar í stuttan tíma og þá er mikilvægt fyrir steggi að halda sig nærri til að missa ekki af tækifærinu. Ekki nóg með það, þeir þurfa virkilega að sanna sig því læðurnar eiga það til að fara yfir stór svæði og láta þá elta sig tímunum saman.

Steggirnir vilja gjarnan hvíla sig en læðurnar eru eirðarlausar og stöðugt á ferðinni. Stundum kemur fyrir að steggurinn hefur sofið á verðinum og læðan horfið á brott á meðan. Þá hefst leit, hann kallar til hennar og oft er hún skammt undan og svarar. Þetta getur verið mikið sjónarspil en erfitt er að fylgja dýrunum eftir þar sem þau ferðast hratt yfir víðáttumikið svæði. Þau virðast óþreytandi þegar þau fara upp í kletta, inn í dali og aftur niður að sjó á örfáum mínútum. Þá er best að koma sér fyrir á hæð með góðan sjónauka og vona að yfirsýnin nægi til að fylgja þeim eftir. 

 

Eftir mökun merkja grendýrin sér óðul og dregur þá úr yfirferð dýranna, greinilegt er að sum dýr halda sig á ákveðnum svæðum en önnur fara í langa könnunarleiðangra. Á tveimur stöðum í bjarginu voru djúpar holur í snjóinn við þekkt greni sem sést hefur til refa fara ofan í. Mögulega hafa þeir verið að ná í gömul fuglahræ frá því í fyrra. Þó sjófugl sé kominn að landinu og sé farinn að halda sig við björgin, er ekki líklegt að refirnir geti náð þeim þar því þeir eru ekki alveg sestir upp. Fýllinn situr hinsvegar í klettum og í bjarginu nánast veturinn milli þess sem farið er út á sjó að leita ætis.

Ef fram heldur sem horfir má búast við að minnsta kosti fimm óðulum með yrðlinga í austanverðri Hornvík næsta sumar.