Sjálfvirkar frjómælingar

Tilkynning:

Vegna rafmagnsvandamála í húsnæði Náttúrufræðistofnunar á Borgum - Akureyri, hafa orðið truflanir á birtungu frjógagna úr sjálfvirkum frjómæli. Unnið er að viðgerð og beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Sjálfvirkar mælingar frjókorna hófust á Akureyri seinnipart sumars 2022 og í Garðabæ í maí 2024. Mæli- og greiningarhæfni mælitækjanna er enn í þróun. Því geta niðurstöður mælinga verið frábrugðnar raungildum.  

Með sjálfvirkri frjókornamælingu eru niðurstöður tiltækar innan nokkurra klukkustunda og gefur það góða mynd af frjókornum sem eru í loftinu hverju sinni. Grafið sýnir sjálfvirkar mælingar frjókorna í lofti á Akureyri og er uppfært á klukkutíma fresti. Hægt er að velja tímabil og tegund frjókorna eftir þörfum.