Válisti spendýra
Válisti spendýra
Válistaflokkun spendýra er unnin í samræmi við hættuflokka Alþjóðanáttúruverndarsambandsins (IUCN) frá árinu 2017, leiðbeiningar IUCN um válistamat og leiðbeiningar við gerð svæðisbundinna válista.
Tegundum er raðað eftir stafrófsröð innan hvers flokks og vísindaheiti eru samkvæmt fyrirmælum IUCN.
Nánari útskýringar á flokkun hverrar tegundar er að finna í umfjöllun um hverja tegund en einnig er hægt að skoða nánari útskýringar um mat spendýra á válista.
Alls er vitað um 52 tegundir land- og sjávarspendýra í náttúru landsins. Við gerð válista Náttúrufræðistofnunar 2018 var lagt mat á 18 þessara tegunda, hinar voru ekki metnar (NA). Tegund er ekki metin vegna eftirfarandi: (a) ekki er um villta tegund að ræða, tegundin er innflutt og telst ekki til íslenskrar fánu. (b) ef um flökkutegund er að ræða, hvort sem um reglubundnar heimsóknir er að ræða eða fáein tilfelli. (c) tegund er á jaðri útbreiðslusvæðis síns á því svæði sem lagt er mat á og/eða yfirleitt er aðeins um örfáa einstaklinga að ræða.
Vegna fjölda sjávarspendýra var válistinn unninn í samvinnu við sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar, Gísla A. Víkingsson og Söndru M. Granquist.
Á válista íslenskra spendýra er ein tegund flokkuð sem útdauð á Íslandi (RE), tvær tegundir eru í bráðri hættu (CR) og tvær tegundir eru í nokkurri hættu (VU). Auk þess eru tvær tegundir sem mögulega gætu lent á válista en gögn vantar til að meta það með vissu, þær tegundir fara því í flokkinn (DD), gögn vantar. Þrjár tegundir flækinga (NA) eru á heimsválista. Tólf íslenskar tegundir eru ekki í hættu (LC) samkvæmt viðmiðum IUCN.
Tegund útdauð á Íslandi (RE)
Nafn | Latneskt heiti | Hættuflokkur | Viðmið | Evrópuválisti | Heimsválisti |
---|---|---|---|---|---|
Sandlægja | Eschrichtius robustus | RE | RE | LC |
Tegund í bráðri hættu (CR)
Nafn | Latneskt heiti | Hættuflokkur | Viðmið | Evrópuválisti | Heimsválisti |
---|---|---|---|---|---|
Landselur | Phoca vitulina | CR | A4b | LC | LC |
Sléttbakur | Eubalaena glacialis | CR | C1, C2a(i) | CR | EN |
Tegundir í nokkurri hættu (VU)
Nafn | Latneskt heiti | Hættuflokkur | Viðmið | Evrópuválisti | Heimsválisti |
---|---|---|---|---|---|
Steypireyður | Balaenoptera musculus | VU | D1 | EN | EN |
Útselur | Halichoerus grypus | VU | A4b | LC | LC |
Gögn vantar (DD)
Nafn | Latneskt heiti | Hættuflokkur | Viðmið | Evrópuválisti | Heimsválisti |
---|---|---|---|---|---|
Andarnefja | Hyperoodon ampullatus | DD | DD | DD | |
Búrhvalur | Physeter macrocephalus | DD | VU | VU |
Tegundir metnar en ekki í hættu (LC)
Nafn | Latneskt heiti | Hættuflokkur | Viðmið | Evrópuválisti | Heimsválisti |
---|---|---|---|---|---|
Hagamús | Apodemus sylvaticus | LC | LC | LC | |
Háhyrningur | Orcinus orca | LC | DD | DD | |
Hnísa | Phocoena phocoena | LC | VU | LC | |
Hnúfubakur | Megaptera novaeangliae | LC | LC | LC | |
Hnýðingur | Lagenorhynchus albirostris | LC | LC | LC | |
Hrefna | Balaenoptera acutorostrata | LC | LC | LC | |
Húsamús | Mus musculus | LC | LC | LC | |
Langreyður | Balaenoptera physalus | LC | NT | VU | |
Leiftur | Lagenorhynchus acutus | LC | LC | LC | |
Marsvín | Globicephala melas | LC | DD | LC | |
Melrakki | Vulpes lagopus | LC | CR | LC | |
Sandreyður | Balaenoptera borealis | LC | EN | EN |
Tegundir á heimsválista sem eru flækingar eða innfluttar tegundir á Íslandi (NA)
Nafn | Latneskt heiti | Hættuflokkur | Viðmið | Evrópuválisti | Heimsválisti |
---|---|---|---|---|---|
Blöðruselur | Cystophora cristata | NA | NA | VU | |
Hreindýr | Rangifer tarandus | NA | LC | VU | |
Hvítabjörn | Ursus maritimus | NA | VU | VU | |
Rostungur | Odobenus rosmarus | NA | NA | VU |
Tegundir ekki metnar (NA)
Nafn | Latneskt heiti | Hættuflokkur | Viðmið | Evrópuválisti | Heimsválisti |
---|---|---|---|---|---|
Brúnrotta | Rattus norvegicus | NA | NA | LC | |
Hringanóri | Pusa hispida | NA | LC | LC | |
Hrímblaka | Lasiurus cinereus | NA | LC | ||
Húmblaka | Nyctalus leisleri | NA | LC | LC | |
Kampselur | Erignathus barbatus | NA | NA | LC | |
Kanína | Oryctolagus cuniculus | NA | NT | NT | |
Króksnjáldri | Mesoplodon densirostris | NA | DD | DD | |
Köttur | Felis silvestris catus | NA | NA | NA | |
Léttir | Delphinus delphis | NA | NA | LC | |
Ljósfæla | Myotis lucifugus | NA | LC | ||
Minkur | Neovison vison | NA | NA | LC | |
Mjaldur | Delphinapterus leucas | NA | NA | LC | |
Náhvalur | Monodon monoceros | NA | NA | LC | |
Norðhvalur | Balaena mysticetus | NA | NA | LC | |
Norðsnjáldri | Mesoplodon bidens | NA | DD | DD | |
Norðurblaka | Myotis septentrionalis | NA | LC | ||
Næturblaka | Nyctalus noctula | NA | LC | LC | |
Rauðrefur | Vulpes vulpes | NA | LC | LC | |
Rákahöfrungur | Stenella coeruleoalba | NA | DD | LC | |
Sauðnaut | Ovibos moschatus | NA | LC | LC | |
Skuggablaka | Vespertilio murinus | NA | LC | LC | |
Skugganefja | Ziphius cavirostris | NA | DD | LC | |
Snæhéri | Lepus arcticus | NA | LC | ||
Stórablaka | Eptesicus fuscus | NA | LC | ||
Stökkull | Tursiops truncatus | NA | DD | LC | |
Svartrotta | Rattus rattus | NA | LC | LC | |
Trítilblaka | Pipistrellus nathusii | NA | LC | LC | |
Vöðuselur | Pagophilus groenlandicus | NA | NA | LC | |
Þvottabjörn | Procyon lotor | NA | NA | LC |
Var efnið hjálplegt? Aftur upp
Takk fyrir!