Skrúður
SF-A 8
Hnit – Coordinates: N64,90028, V13,62456
Sveitarfélag – Municipality: Fjarðabyggð
IBA-viðmið – Category: A1, A4ii, A4iii, B1ii, B2
Stærð svæðis – Area: 616 ha (með verndarjaðri – with buffer zone)
Skrúður er klettaeyja úti fyrir Vattarnesi, milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar, 23 ha að stærð 90 m há, brött og vel gróin. Mikið fuglalíf er í Skrúði (Jóhann Óli Hilmarsson og Smári Brynjarsson 1997) og má þar helst nefna feiknastóra lundabyggð (149.100 pör). Auk lunda, nær langvía alþjóðlegum verndarviðmiðum (11.483 pör). Þar er einnig að finna þriðju stærstu súlubyggð landsins (6.051 par) og töluvert af ritu (6.692 pör).
Skrúður var friðlýstur árið 1995 ásamt 500 m belti umhverfis. Skrúður er á IBA-skrá.
Helstu varpfuglar í Skrúði – Key bird species breeding in Skrúður
Tegund Species |
Latneskt heiti Scientific name |
Árstími Season |
Fjöldi (pör) Number (pairs) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
---|---|---|---|---|---|---|
Súla1 | Morus bassanus | Varp–Breeding | 6.051 | 2013–2014 | 16,3 | |
Rita2 | Rissa tridactyla | Varp–Breeding | *6.692 | 2007 | 1,2 | |
Langvía3 | Uria aalge | Varp–Breeding | 11.483 | 2008 | 1,7 | B2 |
Lundi4 | Fratercula arctica | Varp–Breeding | 149.100 | 2014 | 7,4 | A1, A4ii, B1ii, B2 |
Alls–Total | 173.326 | A4iii | ||||
*16.907 pör 1985. – 16,907 pairs in 1985. ¹Arnþór Garðarsson 2019. Íslenskar súlubyggðir 2013–2014. Bliki 33: 69–71. ²Arnþór Garðarsson, Guðmundur A. Guðmundsson og Kristján Lilliendahl 2013. Framvinda íslenskra ritubyggða. Bliki 32: 1–10. ³Arnþór Garðarsson, Guðmundur A. Guðmundsson og Kristján Lilliendahl 2019. Svartfugl í íslenskum fuglabjörgum 2006–2008. Bliki 33: 35–46. ⁴Arnþór Garðarsson og Erpur Snær Hansen. Lundatal. Í undirbúningi. |
English summary
Skrúður island, E-Iceland, holds internationally important numbers of Uria aalge (11,483 pairs) and Fratercula arctica (149,100 pairs).
Opna í kortasjá – Open in map viewer
Heimildir – References
Jóhann Óli Hilmarsson og Smári Brynjarsson 1997. Fuglalíf í Skrúðnum. Glettingur 7 (2): 21–27.