Rjúpnatalningar 2023

Rjúpnatalningum á vegum Náttúrufræðistofnunar Íslands vorið 2023 er lokið. Talningar sýndu litlar breytingar á stofnstærð samanborið við árið 2022.

Á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðvesturlandi er stofninn nærri hámarki að stærð, á Norðausturlandi er stofninn rétt yfir meðaltali, en um meðaltal á Suðurlandi og Austurlandi.

Reglubundnar 10–12 ára langar sveiflur í stofnstærð hafa einkennt íslenska rjúpnastofninn. Þessar sveiflur hafa breyst í kjölfar friðunar 2003 og 2004 og samdráttar í veiði frá 2005. Nú er mun styttra milli hámarka en áður og þetta er sérstaklega áberandi á Norðausturlandi.

Mat á veiðiþoli rjúpnastofnsins mun liggja fyrir í september í kjölfar mælinga á varpárangri í sumar.

Fréttatilkynning (pdf)