Á Hrafnaþingi miðvikudaginn 26. mars 2025 kl. 15:15-16:00, mun Aldís Erna Pálsdóttir vistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun flytja erindið „Mófuglar – staða og ógnir“.
Í erindinu verður stiklað á stóru um rannsóknir sem hafa verið stundaðar við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Suðurlandi um áhrif ýmissar landnotkunar (hús, vegir, raflínur og skógar) á þéttleika mófugla í nánasta umhverfi.
Erindið verður flutt í Krummasölum, fundarherbergi Náttúrufræðistofnunar á 3. hæð í húsnæði stofnunarinnar í Urriðaholti, Garðabæ. Það verður einnig flutt í beinni útsendingu á Teams.
Hægt er að fylgjast með dagskrá Hrafnaþings á vef Náttúrufræðistofnunar og áhugasömum er bent á að skrá sig á póstlista á natt@natt.is.