Heimskautarefur (Vulpes lagopus). – Ljósm. Phil Garcia
Á Hrafnaþingi miðvikudaginn 12. mars 2025 kl. 15:15-16:00, mun Anna Bára Másdóttir doktorsnemi hjá Náttúrufræðistofnun og Háskóla Íslands flytja erindið „Svipfarsbreytileiki og stofnerfðafræði íslenska heimskautarefsins (Vulpes lagopus)“.
Í erindinu verður fjallað um heimskautarefinn. Heimskautarefurinn á Íslandi er í sérstöðu vegna einangrunar sinnar frá öðrum stofnum og aðlögun að skilyrðum landsins. Meginmarkmið þessarar rannsóknar var að meta breytileika milli mismunandi búsvæða á Íslandi með greiningu á svipgerðareinkennum og erfðum.
Erindið verður flutt í Krummasölum, fundarherbergi Náttúrufræðistofnunar á 3. hæð í húsnæði stofnunarinnar í Urriðaholti, Garðabæ. Það verður einnig flutt í beinni útsendingu á Teams.
Hægt er að fylgjast með dagskrá Hrafnaþings á vef Náttúrufræðistofnunar og áhugasömum er bent á að skrá sig á póstlista á natt@natt.is.