Ferðamannastaðir

Vöktun á ferðamannastöðum

Vöktun náttúrufarsþátta á ferðamannastöðum fer fram með ýmsum aðferðum sem sjá má í handbók verkefnisins.

Byrjað er á forkönnun þar sem unnið er fljótlegt mat á ástandi náttúruminja svæðisins og meta þannig þörf á vöktun svæðisins. Eftir forkönnun er metið hvort svæðið fari á 
vöktunaráætlun og hvaða þættir það eru sem þarfnast vöktunar.

Helstu viðfangsefni skráningar geta verið:

  • Gróðurskemmdir
  • Gróðureyðing
  • Jarðvegsrof
  • Skemmdir á jarðminjum
  • Skemmdir á jarðhitagróðri
  • Hentistígar
  • Vörðubyggingar
  • Ágengar plöntutegundir
  • Sjaldgæfar plöntur

Algengast er að vöktun fari fram með endurtekinni ljósmyndun, hvort sem er með því að velja myndvöktunarpunkta innan svæðisins eða söfnun á loftmyndum með drónum.

Endurtekin ljósmyndun

Vöktun með endurtekinni ljósmyndun (e. photopoint monitoring) er fljótleg, ódýr og einföld leið til að skrá og vakta sýnilegar breytingar á náttúrunni. Til að vöktunin skili árangri þurfa myndir að vera teknar af sama stað, frá sama sjónarhorni, með sama fókuspunkti. Aðferðin virkar best þegar hún er notuð til stuðnings við aðrar vöktunaraðferðir sem miða að magnbundnum mælingum á breytingum í náttúrunni.

Vanda þarf val myndatökustaða. Staðurinn þarf að vera auðfundinn, aðgengi gott og forðast ber brattar brekkur. Myndatökustaður skal gefa góða yfirsýn yfir fyrirbærið sem skal vakta og ljósmyndin leggja áherslu á vöktunarmyndefnið. Það auðveldar túlkun breytinga á myndaröðum. Hafa skal í huga mögulega þróun gróðurs þannig að hann skyggi ekki á myndefnið. Gæta skal að lýsingu myndar en of dökkar myndir af landi geta torvelt greiningu. Allar ljósmyndir þurfa að hafa GPS-hnit og dagsetningu. Ljósmynd án staðsetningar er líklega ónýt.
 

Í dæmi um endurtekna ljósmyndun frá Geysissvæðinu, þar sem myndir eru teknar frá hringsjá ofan Geysis, má sjá hvernig gróður hefur breyst á tímabilinu en með stýringu umferðar gangandi ferðamanna hefur land gróið, þó einkum með lúpínu. Trjágróður hefur sömuleiðis hækkað og breiðst út.

Flygildi

Myndir teknar með flygildi eru notaðar til þess að útbúa myndkort af vöktunarsvæðum. Út frá þeim er hægt að afmarka og kortleggja álagssvæði gróðurs, göngustíga og hentistíga eða nýta til talninga fugla og spendýra og kortlagningar hreiðra svo eitthvað sé nefnt.

Álagssvæði gróðurs og jarðvegs

Gróður leikur stórt hlutverk í ásýnd náttúruverndarsvæða og upplifun fólks á þeim, jafnvel þótt verndargildi svæðanna felist ekki endilega í gróðrinum. Oft eru fyrstu merki um álag af völdum ferðamanna þau að gróður lætur á sjá og sé ekkert að gert leiðir það til gróðureyðingar og jarðvegsrofs.

Traðk veldur skemmdum á gróðurþekju og dregur úr gróðurhæð sem eru yfirleitt fyrstu merkjanlegu áhrif af álagi ferðamanna á áfangastöðum. Viðkvæmur gróður getur fljótt látið á sjá, jafnvel við lítið álag. Ef ekkert er að gert getur ástandið versnað og gildi svæðisins rýrnað. Með vöktun fæst yfirsýn yfir ástand gróðurs á völdum svæðum, sem er grunnur þess að hægt sé að sporna við gróðureyðingu. Með vöktun á umfangi og flokkun gróðurs í álagsflokka má meta þróun á álagssvæðum og hvort ákveðnum vistgerðum sé hætta búin. Vöktunin nýtist einnig til að meta árangur af mótvægisaðgerðum og fyrirbyggjandi aðgerðum til varnar gróðureyðingu.

Álagsskemmdir á gróðri og hætta á jarðvegsrofi er metin með skipulögðum hætti á vettvangi og kortlagðar á myndkort í hárri upplausn. Eftir því sem gagnaöflun vindur fram má greina þróun álagsskemmda. Á völdum svæðum eru lagðir út gróðurreitir til að greina ítarlegar áhrif ágangs á samsetningu tegundahópa í gróðurþekju.
 

Göngustígar

Göngustígar eru grundvöllur álagsstjórnunar á viðkomustöðum ferðamanna. Anni stígakerfi ekki álagi er hætt við gróðurskemmdum, jarðvegsrofi, skemmdum á jarðminjum eða myndun hentistíga. Það hefur svo áhrif á ásýnd viðkomustaðar og náttúruupplifun. Gerður er greinarmundur á merktum stígum og hentistígum. Merktir stígar eru skipulagðir göngustígar en þeir síðarnefndu eru göngustígar sem myndast vegna umferðar gangandi utan skipulagðra stíga. Óheft myndun hentistíga rýrir gildi svæða þar sem þeir geta valdið gróðureyðingu og jarðvegsrofi. Jafnframt er hætta á að plöntutegundir berist með göngufólki sem getur leitt til breytinga á upprunalegri tegundasamsetningu svæða.

Í verkefninu voru þróaðar aðferðir til að kortleggja og meta ástand göngustíga á kerfisbundinn hátt og gert er ráð fyrir að umsjónarmenn náttúruverndarsvæða geti nýtt þær. Aðferðirnar byggja að miklu leyti á vettvangsathugunum og kortlagningu með nákvæmum myndkortum.

Ástand göngustíga er metið á skipulögðum göngustígum með punktmælingum þar sem meðal annars er skráð breidd, dýpt, ástand yfirborðs, vistlendi og rofhætta. Þá eru skemmdir á göngustígum skráðar en þær eru til dæmis hliðarstígar, jarðvegsrof og skortur á dreni. Með vöktuninni má meta hvort stígakerfi sé í stakk búið til að standa undir umferð um svæðið. Aðferð við vöktun hentistíga gagnast til að fylgjast með breytingum á hentistígum og áhrifum hentistíga og utanvegaaksturs á gróður og jarðvegsrof. Metið er hversu stór svæði fara undir slíka stíga, hvaða vistlendum er mest hætta búin, hvað raskið er mikið og hversu mikil rofhætta er til staðar. Aðferðin og eyðublaðið sem fylgir með geta einnig nýst á þeim stöðum þar sem eru margir ómerktir stígar og óljóst hvaða stíg á að nota sem aðalstíg. Slík kortlagning getur nýst við skipulagningu svæðisins.
 

Framandi og ágengar plöntutegundir

Framandi og ágengar plöntutegundir hafa mikil áhrif á plöntusamfélög og tegundasamsetningu. Vistgerðir og plöntutegundir sem láta undan síga fyrir þannig tegundum eru fjölbreyttar og hafa margar hátt verndargildi eða mikla þýðingu fyrir dýrastofna.

Fylgst er með útbreiðslu framandi og ágengra plöntutegunda á náttúruverndarsvæðum. Vöktunin nýtist við að kortleggja útbreiðslu tegunda og þróun þeirra en einnig við að vakta árangur af upprætingu tegundanna. Helstu tegundir sem eru vaktaðar eru lúpína, skógarkerfill, spánarkerfill og risahvannir en þær hafa allar verið skilgreindar sem framandi og ágengar plöntutegundir hér á landi.
 

Sjaldgæfar plöntur og plöntur á válista

Sjaldgæfar plöntutegundir og tegundir á válista er vaktaðar á náttúruverndarsvæðum. Verndargildi þeirra er hátt en margar eiga undir högg að sækja vegna ágangs á búsvæði þeirra.

Fundarstaðir tegunda eru skráðir og hnitsettir. Á vettvangi er flatarmál breiðu eða fjöldi einstaklinga metinn ásamt þéttleika og ummerkjum um nýliðun.Tíðni vöktunar miðast við fimm ár en oftar sé vaxtarstöðum mögulega ógnað af álagi ferðamanna.
 

Heimildir

Anna Sigríður Valdimarsdóttir, Kristín Svavarsdóttir og Guðmundur Ingi Guð¬brandsson 2017. Flokkun og viðgerðir á landskemmdum vegna utanvegaaksturs. Reykjavík: Landvernd og Landgræðsla ríkisins.

Ásrún Elmarsdóttir og Olga Kolbrún Vilmundardóttir 2009. Flokkun gróðurs og landgerða á háhitasvæðum Íslands. Náttúrufræðistofnun Íslands, NÍ-09013. Unnið fyrir Orkustofnun. Reykjavík: Náttúrufræðistofnun Íslands. Kortahefti.

Barros, A., V. Aschero, A. Mazzolari, L.A. Cavieres og C.M. Pickering 2020. Going off trails: How dispersed visitor use affects alpine vegetation. Journal of Environmental Management 267. DOI: 10.1016/j.jenvman.2020.110546

Beadel S.M., J.C. McQueen, C. Bycroft, A. Simpson, S. Rate og W.B. Shaw 2020. Monitoring of Geothermal Vegetation in New Zealand, and the Effects of Geothermal Energy Extraction. World Geothermal Congress 2020, Reykjavík, Iceland, April 26-May 2, 2020. https://pangea.stanford.edu/ERE/db/WGC/Abstract.php?PaperID=4586 [skoðað 31.5.2021]

Burns, B.R., J. Ward og T.M. Downs 2013. Trampling impacts on thermotolerant vegetation of geothermal areas in New Zealand. Environmental management 52(6): 1463–1473. DOI: 10.1007/s00267-013-0187-5

Hammitt, W.E., D.N. Cole og C.A. Monz 2015. Wildland Recreation. Ecology and Management. Third Edition. John Wiley & Sons, Ltd.
Marion, J.L og Y.F. Leung 2001. Trail Resource Impacts and an Examination of Alternative Assessment Techniques. Journal of Park and Recreation Administration 19(3): 17–37.

Marion, J.L., Y.F. Leung og S. Nepal 2006. Monitoring Trail Conditions: New Methodological Considerations. Parks Stewardship Forum 23(2): 36–49. 

Marion, J. L. og Y.F. Leung 2011. Indicators and protocols for monitoring impacts of formal and informal trails in protected areas. Journal of Tourism and Leisure Studies 17(2): 215–236.

Marion, J.L, J.F. Wimpey og L.O. Park 2011. The science of trail surveys: Recreation ecology provides new tools for managing wilderness trails. Park Science 28(3).

Menja von Schmalensee 2010. Vágestir í vistkerfum – Seinni hluti. Framandi og ágengar tegundir á Íslandi. Náttúrufræðingurinn 80(3–4): 84–102 [skoðað 12.3.2021]

Náttúrufræðistofnun Íslands. Ágengar plöntur [skoðað 12.3.2021]

Náttúrufræðistofnun Íslands 2018. Válisti æðplantna [skoðað 15.4.2020]