Hornbjarg
SF-V 35
Hnit – Coordinates: N66,44348, V22,39987
Sveitarfélag – Municipality: Ísafjarðarbær
IBA-viðmið – Category (Hælavíkur- og Hornbjarg): A4i, A4ii, A4iii, B1i, B1ii, B2
Stærð – Area: 1.171 ha (með verndarjaðri – with buffer zone)
Hornbjarg er nyrsti tangi Vestfjarða og nær á milli Hornvíkur og Látravíkur. Hæst nær bjargið 534 m y.s. Það er eitt af þremur mestu fuglabjörgunum á Íslandi. Venja hefur skapast að telja saman varpfugla í Hælavíkurbjargi og Hornbjargi enda eru þau skammt frá hvort öðru, sitt hvorum megin við Hornvík.
Eftirfarandi eru ósundurliðaðar tölur fyrir Hælavíkurbjarg og Hornbjarg. Þær tegundir sem ná alþjóðlegum verndarviðmiðum eru fýll (35.613 pör), rita (243.759 pör), langvía (268.275 pör), stuttnefja (183.738 pör) og álka (5.607 pör).
Hornbjarg er innan Hornstrandafriðlands og á IBA-skrá.
Helstu varpfuglar í Hælavíkur- og Hornbjargi samanlagt – Key bird species breeding in Hælavíkurbjarg and Hornbjarg, in total
Tegund Species |
Latneskt heiti Scientific name |
Árstími Season |
Fjöldi (pör) Number (pairs) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
---|---|---|---|---|---|---|
Fýll1 | Fulmarus glacialis | Varp–Breeding | 35.613 | 2007 | 3,0 | B2 |
Rita2 | Rissa tridactyla | Varp–Breeding | 243.759 | 2007 | 42,0 | A4i, B1i, B2 |
Langvía3 | Uria aalge | Varp–Breeding | 268.275 | 2007 | 38,9 | A4ii, B1ii, B2 |
Stuttnefja3 | Uria lomvia | Varp–Breeding | 183.738 | 2007 | 55,7 | A4ii, B1ii |
Álka3 | Alca torda | Varp–Breeding | 5.607 | 2007 | 1,8 | A4ii, B1ii, B2* |
Alls–Total | 736.992 | A4iii | ||||
¹Arnþór Garðarsson, Kristján Lilliendahl og Guðmundur A. Guðmundsson 2019. Fýlabyggðir á Íslandi 2013–2015. Bliki 33: 1–14. 2Arnþór Garðarsson, Guðmundur A. Guðmundsson og Kristján Lilliendahl 2013. Framvinda íslenskra ritubyggða. Bliki 32: 1–10. 3Arnþór Garðarsson, Guðmundur A. Guðmundsson og Kristján Lilliendahl 2019. Svartfugl í íslenskum fuglabjörgum 2006–2008. Bliki 33: 35–46. *70.000 pör (pairs) 1985 |
English summary
Hælavíkurbjarg and Hornbjarg sea cliffs in Vestfirðir peninsula, NW-Iceland, are on the opposite sites of Hornvík cove. Together they hold internationally important numbers of Fulmarus glacialis (35,613 pairs), Rissa tridactyla (243,759 pairs), Uria aalge (268,275 pairs), Uria lomvia (183,738 pairs) and Alca torda (5,607 pairs).