Bjarnarnúpur
SF-V 14
Hnit – Coordinates: N65,53000, V24,45000
Sveitarfélag – Municipality: Vesturbyggð
IBA-viðmið – Category: A4iii
Stærð – Area: 245 ha (með verndarjaðri – with buffer zone)
Bjarnarnúpur er fuglabjarg á milli Látravíkur og Breiðavíkur, syðst á Vestfjörðum, um 200 m y.s. Þar er alþjóðlega mikilvæg sjófuglabyggð (≥10.000 pör) og ein af tíu stærstu álkubyggðum landsins (967 pör). Einnig verpa þarna fýll (5.602 pör), rita (2.271 par), langvía (1.357 pör) og stuttnefja (709 pör).
Bjarnarnúpur er á náttúruminjaskrá.
Helstu varpfuglar í Bjarnarnúpi – Key bird species breeding in Bjarnarnúpur
Tegund Species |
Latneskt heiti Scientific name |
Árstími Season |
Fjöldi (pör) Number (pairs) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
|
---|---|---|---|---|---|---|---|
Fýll1 | Fulmarus glacialis | Varp–Breeding | 5.602 | 2007 | 0,5 | ||
Toppskarfur2 | Phalacrocorax aristotelis | Varp–Breeding | 7 | 2007 | 0,1 | ||
Rita3 | Rissa tridactyla | Varp–Breeding | 2.271 | 2007 | 0,4 | ||
Langvía4 | Uria aalge | Varp–Breeding | 1.357 | 2007 | 0,2 | ||
Stuttnefja4 | Uria lomvia | Varp–Breeding | 709 | 2007 | 0,2 | ||
Álka4 | Alca torda | Varp–Breeding | 967 | 2007 | 0,3 | ||
Alls–Total | 10.913 | A4iii | |||||
¹Arnþór Garðarsson, Kristján Lilliendahl og Guðmundur A. Guðmundsson 2019. Fýlabyggðir á Íslandi 2013–2015. Bliki 33: 1–14. ²Arnþór Garðarsson og Ævar Petersen 2009. Íslenski toppskarfsstofninn. Bliki 30: 9–26. 3Arnþór Garðarsson, Guðmundur A. Guðmundsson og Kristján Lilliendahl 2013. Framvinda íslenskra ritubyggða. Bliki 32: 1–10. 4Arnþór Garðarsson, Guðmundur A. Guðmundsson og Kristján Lilliendahl 2019. Svartfugl í íslenskum fuglabjörgum 2006–2008. Bliki 33: 35–46. |
English summary
Bjarnarnúpur sea cliff in Vestfirðir peninsula, NW-Iceland, is an internationally important seabird colony (≥10,000 pairs). The main species are Fulmarus glacialis (5,602 pairs), Rissa tridactyla (2,271 pair), Uria aalge (1,357 pairs), Uria lomvia (709 pairs) and Alca torda (967 pairs).