Fréttir
- 2024 chevron_right
- 2023 chevron_right
- 2022 chevron_right
- 2021 chevron_right
- 2020 chevron_left
- 2019 chevron_right
- 2018 chevron_right
- 2017 chevron_right
- 2016 chevron_right
- 2015 chevron_right
- 2014 chevron_right
- 2013 chevron_right
- 2012 chevron_right
- 2011 chevron_right
- 2010 chevron_right
- 2009 chevron_right
- 2008 chevron_right
- 2007 chevron_right
- 2006 chevron_right
Fréttir
Takmörkuð þjónusta vegna sumarleyfa
Á Akureyri verður tekið á móti myglusveppum úr húsum til greininga, ásamt því sem sveppafræðingur tekur gjarnan á móti upplýsingum um sveppi. Símanúmer sveppafræðings er 5900574.
Hægt er að senda inn erindi á netfangið ni@ni.is.
Surtseyjarleiðangur líffræðinga 2020
Rannsóknir líffræðinga í Surtsey undanfarna daga sýna að gróska í eynni er með eindæmum góð þetta sumarið. Aldrei áður hafa fundist jafnmargar æðplöntutegundir og þar af voru tvær nýjar. Einnig eru tvær nýjar smádýrategundir komnar fram.
Refir á Hornströndum koma vel undan vetri
Í nýafstaðinni vettvangsferð Náttúrufræðistofnunar Íslands kom í ljós að ábúð og tímgun refa á Hornströndum er með besta móti, eða 40%. Flest óðul hafa stækkað og fæðuskilyrði eru góð, svo árið lítur vel út fyrir afkomu refanna.
Frjómælingar framan af sumri
Akureyri
Frjómælingar hófust á Akureyri 24. mars en einungis nokkur frjókorn mældust þann mánuðinn. Í byrjun apríl fóru elri- og lyngfrjó að mælast í litlu magni. Alls mældust 48 frjó/m3 í aprílmánuði sem er nokkuð undir meðallagi.
Nýtt rit um rannsóknir í Surtsey
Surtsey Research birtir greinar á ensku um rannsóknir í Surtsey og tengd efni frá öðrum eldfjallasvæðum. Liðin eru 55 ár frá því fyrsta ritið kom út. Framan af voru ritin prentuð en síðustu tvö rit eru aðeins gefin út á rafrænu formi.
Miklar gróðurskemmdir eftir eld í Norðurárdal í...
Síðdegis þann 18. maí 2020 var tilkynnt um eld í skóglendi í Norðurárdal, vestan Norðurár, nokkru neðan við fossinn Glanna og rétt vestan Paradísarlautar.
Rjúpnatalningar 2020
Rjúpnatalningum á vegum Náttúrufræðistofnunar Íslands vorið 2020 er lokið. Rjúpum fækkaði á Norðurlandi en fjölgaði í öðrum landshlutum.
Sumarstörf hjá Náttúrufræðistofnun Íslands
Störfin sem um ræðir eru ýmist hjá Náttúrufræðistofnun Íslands í Garðabæ eða Akureyri. Upplýsingar um þau er að finna á vef Vinnumálastofnunar og þar á jafnframt að sækja um. Umsóknarfrestur er til 5. júní.