
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í heimsókn
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, heimsótti Náttúrufræðistofnun Íslands í gær í þeim tilgangi að kynna sér hlutverk og starfsemi stofnunarinnar og hitta fyrir starfsfólk. Með ráðherra í för var aðstoðarmaður hans, ráðuneytisstjóri og upplýsingafulltrúi.

Hrafnaþing: Gróður og næringarefni í jarðvegi á...
Hrafnaþing verður haldið miðvikudaginn 23. febrúar kl. 15:15–16:00. Dominik Arend umhverfis- og auðlindafræðingur frá háskólanum í Freiburg flytur erindið „Arctic Fox Gardens: Vegetation and soil nutrients on fox dens“.

Nýtt jarðfræðikort af Vesturgosbeltinu
Út er komið nýtt jarðfræðikort af Vesturgosbelti Íslands í mælikvarðanum 1:100.000. Það nær yfir hraunasvæðin norðan Þingvallavatns og norður fyrir Langjökul og frá vestri teygir það sig yfir Arnarvatnsheiði og til austurs yfir Hreppafjöll.
Þóra Katrín Hrafnsdóttir

Hrafnaþing: Vöktun náttúruverndarsvæða
Hrafnaþing verður haldið miðvikudaginn 9. febrúar kl. 15:15–16:00. Rannveig Anna Guicharnaud verkefnisstjóri hjá Náttúrufræðistofnun Íslands flytur erindið „Vöktun náttúruverndarsvæða“.
Heiður Reynisdóttir

Nýtt rit um útbreiðslu og líffræði agna í hafinu...
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur gefið út ritið „Útbreiðsla og líffræði agna (krabbadýr: Lophogastrida og Mysida) í hafinu við Ísland“ eftir Ólaf S. Ástþórsson og Torleiv Brattegard og er það númer 58 í ritröðinni Fjölrit Náttúrufræðistofnunar.