
Takmörkuð þjónusta vegna sumarleyfa
Vegna sumarleyfa starfsfólks verður móttaka og símsvörun Náttúrufræðistofnunar Íslands í Garðabæ og á Akureyri lokuð frá og með mánudeginum 25. júlí til og með 5. ágúst.

Surtseyjarleiðangur líffræðinga 2022
Árlegur líffræðileiðangur til Surtseyjar sýnir að hægt hefur á landnámi nýrra plöntutegunda. Hins vegar hafa tvær nýjar smádýrategundir nú numið land í Surtsey.

Frjókorn í lofti í júní
Tekið hefur verið saman yfirlit frjómælinga á Akureyri og í Garðabæ í júní. Norðan heiða var heildarfjöldi frjókorna vel yfir meðallagi en því var öfugt farið á höfuðborgarsvæðinu þar sem fjöldi frjókorna var vel undir meðallagi.

Ástand lífríkisins á Hornströndum kannað
Árlegur leiðangur Náttúrufræðistofnunar Íslands til Hornstranda fór fram dagana 19. júní til 4. júlí í þeim tilgangi að kanna ástand refastofnsins og lífríkis á svæðinu.

Vísindagrein um 14 götungategundir á Íslandsmiðum
Í júní 2022, birtist vísindagrein í tímaritinu European Journal of Taxonomy, eftir Guðmund Guðmundsson frá Náttúrufræðistofnun Íslands, Tomas Cedhagen frá Árósarháskóla) og Tom Anderson frá Oslóarháskóla.

Skriðuföll í Hörgárdal árið 1390 og afdrif...
Nýlega kom út grein eftir Halldór G. Pétursson jarðfræðing hjá Náttúrufræðistofnun Íslands sem fjallar um mikil skriðuföll sem áttu sér stað á Hörgárdalssvæðinu árið 1390. Greinin birtist í 19. hefti Heimaslóðar, Árbók Hörgársveitar.

Blátt kolefnisvistkerfi Norðurlandanna: staða og...
Nýverið kom út grein í vísindatímaritinu Frontiers in Marine Science sem fjallar um stöðu og horfur norrænna strand- og sjávarvistkerfa með tilliti til kolefnisbindingar og möguleika á að draga úr loftslagsbreytingum.

Vísindagrein um gróðurframvindu í Surtsey
Nýverið kom út í vísindatímaritinu Ecology and Society grein sem fjallar um kerfisgreiningu á plöntusamfélagi í máfavarpi á eldfjallaeyjunni Surtsey á árunum 2000–2018.