
Hrafnaþing: Breytingar tindagróðurs í Öxnadal 2008...
Á Hrafnaþingi miðvikudaginn 20. apríl kl. 15:15–16:00 flytur Starri Heiðmarsson fléttufræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands erindið „Breytingar tindagróðurs í Öxnadal 2008–2021: vöktun á áhrifum loftslagsbreytinga“. Hrafnaþing verður haldið í fundarherbergi R262 á 2.

Hrafnaþing: Vatnajökulsþjóðgarður, þróun og...
Hrafnaþing Náttúrufræðistofnunar Íslands verður haldið miðvikudaginn, 6. apríl kl. 15:15–16:00. Ingibjörg Smáradóttir sérfræðingur hjá Vatnajökulsþjóðgarði kynnir helstu þætti úr meistararannsókn sinni ...

Styrkur til rannsókna á landnámi innfluttra...
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur hlotið 2,5 milljóna króna styrk úr Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar til verkefnisins „Opna fjallvegir hlið fyrir landnám innfluttra plöntutegunda á hálendi Íslands?“. Verkefninu er stýrt af Pawel Wasowicz grasafræðingi.

Skýrsla um útbreiðslu stafafuru í Steinadal
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur gefið út skýrslu um rannsóknir á útbreiðslu stafafuru í Steinadal í Suðursveit.

Vísindagrein um líftölur íslenskra fálka
Nýverið kom út í vísindatímaritinu PeerJ grein eftir vistfræðingana Frédéric Barraquand og Ólaf K. Nielsen sem fjallar um líftölur íslenskra fálka, Falco rusticolus.

Hrafnaþing: Útbreiðsla stafafuru í Steinadal í...
Hrafnaþing verður haldið miðvikudaginn 23. mars kl. 15:15–16:00. Pawel Wasowicz grasafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands flytur erindið „Útbreiðsla stafafuru í Steinadal í Suðursveit“.

Ný vísindagrein um útbreiðslu stormþular
Í lok síðustu viku kom út í vísindatímaritinu Biological Invasions grein eftir Paweł Wąsowicz og Torbjørn Alm sem fjallar um stormþul, Senecio pseudoarnica, sem er innflutt og harðger garðplanta sem víða breiðist hratt út.

Laust starf á starfsstöð Náttúrufræðistofnunar...
Náttúrufræðistofnun Íslands leitar að starfsmanni í 50% starf í móttöku og þjónustu á starfsstöð stofnunarinnar á Akureyri. Umsóknarfrestur er til og með 18. mars 2022.

Styrkur til rannsókna á tunguskollakambi
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur hlotið 1,8 milljóna króna styrk úr Orkurannsóknasjóði Landsvirkjunar til rannsókna á vistfræði og stofnerfðafræði tunguskollakambs, Struthiopteris fallax. Verkefninu er stýrt af Pawel Wasowicz grasafræðingi.

Hrafnaþing: Fuglalífið á Hornströndum
Hrafnaþing Náttúrufræðistofnunar Íslands verður haldið miðvikudaginn, 9. mars kl. 15:15–16:00. Ester Rut Unnsteinsdóttir spendýravistfræðingur i hjá Náttúrufræðistofnun Íslands flytur erindið „Fuglalífið á Hornströndum“.