
Dagur jarðbreytileikans
Alþjóðlegur dagur jarðbreytileikans (e. geodiversity) er haldinn ár hvert þann 6. október. Þema dagsins í ár er „Varðveitum fortíðina, tryggjum sjálfbæra framtíð“ (e. “Conserving the Past, Sustaining the Future”).

Ástand lífríkis í friðlandi Hornstranda kannað
Vettvangsrannsóknir í friðlandi Hornstranda, nánar tiltekið í Hornvík, standa yfir dagana 15.–29. september. Tilgangurinn er að kanna ástand refastofnsins og annars lífríkis á svæðinu.

Evrópsk ráðstefna um jarðvanga í Reykjanesbæ
Evrópuráðstefna UNESCO-jarðvanga verður haldin á Reykjanesi dagana 2.–4. október næstkomandi. Þetta er í sautjánda sinn sem slík ráðstefna er haldin en nú í fyrsta sinn á Íslandi.

Vísindagrein um bergfræði Kröfluelda 1975–1984
Í vísindaritinu Earth and Planetary Science Letters birtist nýverið grein sem fjallar um bergefnafræði allra 9 gosa í Kröflueldum 1975-1984.

Áhrif norðurljósa á GPS/GNSS mælingar
Norðurljós eru undurfallegar ljósabreytingar á himni sem myndast þegar rafhlaðnar agnir frá sólinni rekast á segulsvið jarðar. Norðurljós eru því ekki bara fögur heldur geta þau haft veruleg áhrif á rafsegulbylgjur og þar með GPS/GNSS mælingar.

Eydís forstjóri nýrrar Náttúrufræðistofnunar
Eydís Líndal Finnbogadóttir hefur verið ráðinn forstjóri Náttúrufræðistofnunar, en áður var hún settur forstjóri er sameining Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn, Landmælinga Íslands og Náttúrufræðistofnunar Íslands áttu sér stað 1.júlí síðastliðinn.

Fræðslumyndasögur á Degi íslenskrar náttúru
Fræðslumyndasögur um líffræðilega fjölbreytni eru birtar á vef Náttúrufræðistofnunar á Degi íslenskrar náttúru. Höfundar þeirra eru Unnar Ingi Sæmundarson handritshöfundur og Vala Steingrímsdóttir sem myndskreytir.