Vestmannaeyjar
SF-S 4
Hnit – Coordinates: N63,44200, V20,28600
Sveitarfélag – Municipality: Vestmannaeyjabær
IBA-viðmið – Category: A1, A4i, A4ii, A4iii, B1i, B1ii, B2
Stærð svæðis – Area: 13.898 ha (með verndarjaðri – with buffer zone)
Vestmannaeyjar eru eyjaklasi undan Landeyjarsandi og eru ýmist taldar 15 eða 18 auk 30 skerja og dranga. Í Eyjum eru afar mikilvægar varpstöðvar sjófugla og er stofna nokkurra tegunda svo til eingöngu að finna í Eyjum: skrofu, stormsvölu og sjósvölu (Jóhann Óli Hilmarsson 2009). Einkennisfugl Vestmannaeyja er lundinn, enda er þar langstærsta lundabyggð landsins, með 840.375 pörum. Aðrar tegundir sem ná alþjóðlegum verndarviðmiðum eru fýll (38.377 pör), skrofa (5.660 pör), stormsvala (75.000 pör), sjósvala (198.000 pör), súla (15.044 pör), rita (50.185 pör), langvía (33.016 pör) og álka (2.843 pör).
Elliðaey, Ystiklettur, Hellisey og Súlnasker hafa lengi verið á náttúruminjaskrá og á IBA-skrá. Tillögur um friðlýsingu helstu fuglabyggðanna voru í náttúruverndaráætlun 2004–2008. Friðlýsingarskilmálar voru samþykktir af bæjarstjórn Vestmannaeyja sumarið 2016 en ekki hefur verið gengið formlega frá friðlýsingu.
Helstu varpfuglar í Vestmannaeyjum – Key bird species breeding in Vestmannaeyjar
Tegund Species |
Latneskt heiti Scientific name |
Árstími Season |
Fjöldi (pör) Number (pairs) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
|
---|---|---|---|---|---|---|---|
Fýll1 | Fulmarus glacialis | Varp–Breeding | 38.377 | 2006–2008 | 3,2 | B2 | |
Skrofa2 | Puffinus puffinus | Varp–Breeding | 5.660 | 1991 | 100 | A4ii, B1ii | |
Stormsvala3 | Hydrobates pelagicus | Varp–Breeding | 75.000 | 1983–2010 | 100 | A4ii, B1ii | |
Sjósvala4 | Hydrobates leucorhoa | Varp–Breeding | 198.000 | 1991 | 100 | A4ii, B1ii | |
Súla5 | Morus bassanus | Varp–Breeding | 15.044 | 2013–2014 | 40,4 | A4ii, B1ii | |
Rita6 | Rissa tridactyla | Varp–Breeding | 50.185 | 2006–2008 | 8,6 | A4i, B1i, B2 | |
Langvía7 | Uria aalge | Varp–Breeding | 33.016 | 2006 | 4,8 | B1ii, B2 | |
Álka7 | Alca torda | Varp–Breeding | 2.843 | 2006 | 0,9 | B2 | |
Lundi8 | Fratercula arctica | Varp–Breeding | 840.375 | 2015 | 41,5 | A1, A4ii, B1ii, B2 | |
Alls–Total | 1.258.500 | A4iii | |||||
¹Arnþór Garðarsson, Kristján Lilliendahl og Guðmundur A. Guðmundsson 2019. Fýlabyggðir á Íslandi 2013–2015. Bliki 33: 1–14. ²Erpur S. Hansen, Broddi R. Hansen, Jóhann Óli Hilmarsson og Ingvar A. Sigurðsson 2009. Breyting á stofnstærð skrofunnar í Ystakletti, Vestmannaeyjum 1991–2009. Veggspjald kynnt á Líffræðiráðstefnunni, 6.–7. nóvember 2009, í Öskju, Háskóla Íslands. ³Erpur Snær Hansen og Jóhann Óli Hilmarsson, óbirt gögn. – Unpublished data. ⁴Erpur Snær Hansen, Broddi Reyr Hansen og Jóhann Óli Hilmarsson 2009b. Sjósvölutal Vestmannaeyja. Veggspjald kynnt á Líffræðiráðstefnunni, 6.–7. nóvember 2009, Öskju, Háskóla Íslands. ⁵Arnþór Garðarsson 2019. Íslenskar súlubyggðir 2013–2014. Bliki 33: 69–71. ⁶Arnþór Garðarsson, Guðmundur A. Guðmundsson og Kristján Lilliendahl 2013. Framvinda íslenskra ritubyggða. Bliki 32: 1–10. ⁷Arnþór Garðarsson, Guðmundur A. Guðmundsson og Kristján Lilliendahl 2019. Svartfugl í íslenskum fuglabjörgum 2006–2008. Bliki 33: 35–46. 8Arnþór Garðarsson og Erpur Snær Hansen. Lundatal. Í undirbúningi. |
English summary
Vestmannaeyjar island group, S-Iceland, is a huge seabird colony with internationally important numbers of Fratercula arctica (840,375 pairs), Fulmarus glacialis (38,377 pairs), Puffinus puffinus (5,660 pairs), Hydrobates pelagicus (75,000 pairs), Oceanodroma leucorhoa (198,000 pairs), Morus bassanus (15,044 pairs), Rissa tridactyla (50,185 pairs), Uria aalge (33,016 pairs) and Alca torda (2,843 pairs).
Opna í kortasjá – Open in map viewer
Heimildir – References
Jóhann Óli Hilmarsson 2009. Fuglalíf Vestmannaeyja. Í Guðjón Ármann Eyjólfsson, ritstj. Vestmannaeyjar, Árbók Ferðafélags Íslands, bls. 28–51 og 292–293. Reykjavík: Ferðafélags Íslands.