
Alþjóðlegur dagur jarðbreytileikans
Í dag, 6. október 2022, er Alþjóðlegum degi jarðbreytileikans fagnað í fyrsta sinn.

Vísindakaffi á Breiðdalsvík
Í tengslum við Vísindavöku, sem haldin var síðastliðna helgi, býður Rannís upp á Vísindakaffi á Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Breiðdalsvík, í samstarfi við borkjarnasafn Náttúrufræðistofnunar Íslands á Breiðdalsvík og Breiðdalssetur.

Íslensk náttúra í þrívídd á Vísindavöku
Vísindavaka 2022 verður haldin í Laugardalshöll, laugardaginn 1. október. Náttúrufræðistofnun Íslands verður á staðnum og býður gestum að kynnast því hvernig þrívíddartækni nýtist við rannsóknir á íslenskri náttúru.

Ársfundur Náttúrufræðistofnunar Íslands 2022
Ársfundur Náttúrufræðistofnunar Íslands verður haldinn á Hótel Hamri, Borgarnesi, miðvikudaginn 28. september kl. 13:30–17:00. Fundinum verður streymt á Teams.

Rannsóknir á mosadýrum á Íslandsmiðum
Nýverið kom út fræðigrein í tímaritinu Polar Biology sem fjallar um tegundafjölbreytni mosadýra (Bryozoa) á Íslandsmiðum. Mosadýr eru sambýli aragrúa smágerðra dýra, sem þekja steina eða annað hart undirlag.

Unnið að rannsóknum á svampdýrum við Ísland
Dagana 8.–19. september unnu sjö erlendir sérfræðingar í svampdýrum (Porifera) að því að greina svampdýr í Þekkingarsetrinu í Sandgerði, ásamt starfsmönnum frá Náttúrufræðistofnun Íslands og Hafrannsóknastofnun.

Ný fræðigrein úr rannsókn á heilbrigði rjúpunnar
Nýlega er útkomin fræðigrein þar sem fjallað er um dreifingu sníkjudýra rjúpu og byggir á gögnum sem safnað var á Íslandi í rannsókn á heilbrigði rjúpunnar. Titill greinarinnar er „Identifying sources of variation in parasite aggregation“

Náttúrufræðistofnun Íslands fagnar degi íslenskrar...
Dagur íslenskrar náttúru er föstudaginn 16. september. Náttúrufræðistofnun Íslands ætlar að halda upp á daginn með því að bjóða til síðdegisgöngu um hraunið í nágrenni stofnunarinnar í Garðabæ og hádegisfræðslu um sveppi í húsakynnum stofnunarinnar á Akureyri.

Ný undirtegund æðplöntu fyrir landið
Í sumar fannst ný æðplöntutegund á Íslandi sem er náskyld hrafnastör. Með því hefur heildarfjöldi flokkunareininga (tegunda, undirtegunda og afbrigða) í Íslensku flórunni aukist úr 426 í 427.

Frjómælingar í ágúst
Í ágúst var fjöldi frjókorna í lofti á Akureyri svipaður og í meðalári en í Garðabæ var fjöldinn langt fyrir neðan meðaltal.