
Fjöldi fugla og tegundafjölbreytni í þéttbýli
Nýlega birtist grein í tímaritinu „Journal of Urban Ecology“ sem fjallar um fjölbreytileika fugla í þéttbýli. Þar kemur meðal annars fram að fjöldi fugla og tegundafjölbreytni þeirra er meiri í görðum miðsvæðis í Reykjavík en á grænum svæðum í úthverfum borgarinnar.

Jólakveðja 2022
Náttúrufræðistofnun Íslands óskar samstarfsfólki og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

Ráðstefna aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um...
Fimmtánda ráðstefna aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni (Convention on Biological Diversity, CBD), fer nú fram dagana 7.–19. desember í Montreal, Kanada.

Ný tegund höfrunga við Ísland
Um miðjan júlí síðastliðinn var tilkynnt um tvo höfrunga sem rekið hafði á land í botni Hrútafjarðar. Í ljós kom að höfrungarnir voru fyrstu sinnar tegundar sem fundist hafa við Ísland. Þeir hafa verið krufðir og verða beinagrindurnar varðveittar hjá Náttúrufræðistofnun Íslands.

Hrafnaþing: Ojjj! Vísindaferð á átta fótum
Á Hrafnaþingi miðvikudaginn 7. desember, mun Ingi Agnarsson prófessor í dýrafræði við Háskóla Íslands flytja erindið „Ojjj! Vísindaferð á átta fótum“.

Gróðurbreytingar í Skaftafelli í kjölfar friðunar...
Gefin hefur verið út skýrsla sem fjallar um rannsóknir á framvindu gróðurs í Skaftafelli á tímabilinu 1979–2018. Niðurstöður sýna miklar breytingar, úr melagróðri, mólendi og kjarrlendi til gróskumeiri lyng- og blómskóga.