
Hrafnaþing: Borkjarnasafn Náttúrufræðistofnunar...
María Helga Guðmundsdóttir jarðfræðingur og umsjónarmaður borkjarnasafns Náttúrufræðistofnunar Íslands flytur erindið „Borkjarnasafn Náttúrufræðistofnunar Íslands: Uppbygging og framtíðarsýn“ á Hrafnaþingi miðvikudaginn 23. nóvember kl. 15:15.

Hagamýs í Vestmannaeyjum
Hagamús hefur nýverið numið land í Vestmannaeyjum. Fram til þessa höfðu þar einungis verið húsamýs.

Villtir fuglar hafa áhrif á útbreiðslu inflúensu A...
Í nýútkominni fræðigrein sem birtist í vísindatímaritinu Molecular ecology er greint frá því að inflúensuveirur A dreifist landlægt með stofnum villtra fugla sem ferðast árstíðabundið milli vetrarstöðva á suðlægum breiddargráðum til varpsvæða á norðurslóðum.

Holdafar rjúpna haustið 2022
Holdafar rjúpna nú í haust er með ágætum. Þó stefnir ferillinn fyrir holdastuðul fullorðinna fugla niður á við og þeir eru í lakari holdum en í fyrra. Enginn munur var á holdafari unga 2021 og 2022.

Talningar á grágæsum
Grágæsir verða taldar hér á landi og á vetrarstöðvum á Bretlandseyjum 19.–20. nóvember 2022.

Ungur örn greindist fyrstur með skæða fuglaflensu...
Skæð fuglaflensa (HPAI H5N1) greindist fyrst hér á landi í ungum erni sem drapst haustið 2021. Annar ungur örn drapst úr flensunni nú í haust.

Erfðarannsókn á stofngerð birkiskóga á Íslandi
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur í samstarfi við Háskólann á Akureyri, Náttúrustofu Norðurlands Vestra og Háskóla Íslands framkvæmt stofnerfðafræðilega rannsókn á birkiskógum á Íslandi.

Hátt í 500 pöddur á pödduvefnum
Undanfarið hefur pödduvefur Náttúrufræðistofnunar Íslands verið yfirfarinn að nokkru leyti og uppfærður eftir að hafa verið í biðstöðu á meðan vefur stofnunarinnar var í endurgerð. Áhersla hefur verið lögð á að koma nýju efni í birtingu og samhliða nokkurt eldra efni lagfært.

Hrafnaþing: Samverkan íss og bergkviku...
Á Hrafnaþingi á morgun, miðvikudaginn 9. nóvember, mun Catherine R. Gallagher nýdoktor hjá Norræna eldfjallasetrinu flytja erindi á Hrafnaþingi sem nefnist „Characterising ice-magma interactions during the final stages of the 1783–84 CE Laki fissure eruption, Iceland“.

Slakt arnarvarp sumarið 2022 og ferðir ungra arna
Arnarvarp 2022 var lélegt samanborið við mörg undanfarin ár. Tæplega helmingur para sem urpu kom upp ungum. Ungir ernir sem bera leiðarrita sýna að flestir þeirra halda sig á vestanverðu landinu, einkum við Breiðafjörð.