
Alþjóðlegur dagur líffræðilegrar fjölbreytni er í...
Í dag, 22. maí, er alþjóðlegur dagur líffræðilegrar fjölbreytni. Slagorð dagsins er „Frá samkomulagi til aðgerða: endurheimtum líffræðilega fjölbreytni.“

Nýtt rit um fæðu rjúpna að hausti
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur gefið út ritið „Autumn food of rock ptarmigan Lagopus muta: the effect of age, sex, year and location“ eftir Chloé Dépré og Ólaf K. Nielsen og er það númer 59 í ritröðinni Fjölrit Náttúrufræðistofnunar.

Loftslagsdagurinn 4. maí
Loftslagsdagurinn 2023 fer fram 4. maí í Hörpu og beinu streymi.

Kynningarfundur um jarðminjaskráningu
Kynningarfundur um jarðminjaskráningu verður haldinn hjá Náttúrufræðistofnun Íslands þriðjudaginn 9. maí, kl. 15–17 í húsakynnum stofnunarinnar að Urriðaholtsstræti 6–8 í Garðabæ.

Hrafnaþing: Ný aðferðafræði til að fylgjast með...
Stephen J. Hurling doktorsnemi við Landbúnaðarháskóla Íslands flytur erindi um vistfræði nætursjófugla í Vestmannaeyjum á Hrafnaþingi 26. apríl 2023 kl. 15:15.

Stofnunin lokuð vegna starfsdags
Vinsamlegast athugið að móttaka í Urriðaholti Garðabæ og í Borgum á Akureyri er lokuð í dag, 24. apríl, vegna starfsdags stofnunarinnar.

Hrafnaþing: Ráðgátan um steingerðu fótsporin í...
Á Hrafnaþingi miðvikudaginn 12. apríl kl. 15:15–16:00, mun Birgir Vilhelm Óskarsson jarðfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands flytja erindið „Ráðgátan um steingerðu fótsporin í Surtsey“.

Gróðureldur við Óttarsstaði vestan við Straumsvík
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur metið gróðurskemmdir á landspildu við Óttarsstaði rétt vestan við Straumsvík í Hafnarfirði eftir elda sem loguðu þar 23.–25. mars. Svæðið sem brann var 9 ha að flatarmáli samkvæmt mælingum stofnunarinnar.

Skýrsla um útbreiðslu innfluttra plöntutegunda...
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur gefið út skýrslu um rannsóknir á útbreiðslu innfluttra plöntutegunda meðfram vegum á hálendi Íslands en rannsóknirnar voru styrktar af Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar.